Aceitar Jesus
Aceitar Jesus é a decisão mais importante da vida. Quem o recebe como Senhor e Salvador recebe vida eterna, perdão completo e a presença permanente do Espírito Santo.
Honum var jafnvel hafnað í sínu eigin landi og af eigin þjóð – Gyðingum. Fáir tóku við honum, en öllum þeim sem það gerðu gaf hann rétt og kraft til að verða Guðs börn – þeim sem treystu því að hann gæti frelsað þá.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
Jesús svaraði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemst til föðurins nema hann trúi á mig.
Ef þú játar með munni þínum að Jesús Kristur sé Drottinn þinn og trúir í hjarta þínu að Guð hafi reist hann upp frá dauðum, þá muntu frelsast.
Laun syndarinnar eru dauði, en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
En hver sem ákallar Drottin mun frelsast."
Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna, og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda.
Hann er sá eini sem getur frelsað okkur frá syndinni og annað nafn er ekki til, sem menn geta ákallað sér til hjálpræðis."
Þeir svöruðu: „Trúðu á Drottin Jesú og þá muntu frelsast og allt þitt heimafólk."
En ef við játum syndir okkar fyrir Guði, getum við treyst því að hann fyrirgefi þær og hreinsi okkur af öllu ranglæti. Í þessu gerir Guð rétt, því að Kristur dó til þess að taka burt syndir okkar.
Taktu eftir! Ég stend fyrir utan og ber að dyrum. Ef einhver heyrir til mín og opnar, mun ég fara inn til hans og setjast til borðs með honum og hann með mér.