Agradecimento pela vida
Agradecer pela vida é reconhecer que cada respiração é dom de Deus. Toda criatura que tem fôlego louve ao Senhor — porque Ele nos formou e nos sustenta com amor.
Allt sem andardrátt hefur lofi Drottin! Einnig þú! Hallelúja!
Dýrð sé Guði! Já, ég vil vegsama hann! Ég vil lofa hann á meðan ég lifi, vegsama hann fram á síðustu stund.
Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst. Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég sá dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga – sérhver dagur var skráður í bók þína!
Ég vil lofsyngja Drottni svo lengi sem ég lifi, vegsama Guð á meðan ég er til! Ó, að ljóð þetta mætti gleðja hann, því að Drottinn er gleði mín og fögnuður.
Reynið að skilja hvað í því felst að Drottinn er Guð. Við erum handaverk hans! Fólkið sem hann leiðir.
Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð, í forgarða hans með lofsöng. Þakkið honum, lofið nafn hans.
Réttlæti þitt er stöðugt eins og fjöllin. Dómar þínir hvíla á vísdómi, þeir vitna um mikilleik þinn líkt og úthöfin. Þú berð umhyggju fyrir mönnum og skepnum. Hversu dýrmæt er miskunn þín ó, Guð! Mennirnir leita skjóls í skugga vængja þinna. Þú nærir þá með krásum af borði þínu og lætur þá drekka úr lækjum unaðssemda þinna.
Ég vil lofa þig Drottinn, því að þú hefur frelsað mig frá óvinum mínum. Þú leyfðir þeim ekki að yfirbuga mig. Ó, Drottinn Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.
Drottinn, ég vil lofa þig af öllu hjarta og segja öllum frá þínum dásamlegu verkum!
og þakkið Guði föður fyrir alla hluti í nafni Drottins Jesú Krists.
Lofaður sé Guð, faðir Drottins Jesú Krists, sem frá himnum hefur blessað okkur ríkulega, vegna þess að við tilheyrum Jesú.
Guði séu þakkir fyrir son sinn – þá gjöf sem engin orð fá lýst.
og þakkað föðurnum, sem hefur gefið okkur hlutdeild í öllum þeim gæðum sem tilheyra ríki ljóssins. Hann hefur hrifið okkur frá valdi myrkursins, úr ríki Satans, og leitt okkur inn í ríki síns elskaða sonar, sem keypti okkur frelsi með krossdauða sínum og fyrirgaf okkur syndirnar.
Hið dýrlega verk Krists
Kristur er sýnileg mynd hins ósýnilega Guðs. Hann var til áður en Guð skapaði heiminn. Það var reyndar hans vegna sem allt var skapað á himni og jörðu, bæði það sem sést og einnig hið ósýnilega – hinn andlegi heimur með tignum sínum og völdum. Krists vegna varð allt þetta til, honum til dýrðar og þjónustu. Hann var á undan öllu öðru og það er hans kraftur sem viðheldur því.