Publicidade

Anjos

Por Bíblia Online

Os anjos são seres celestiais criados por Deus para servir, adorar e executar seus propósitos. A Bíblia revela anjos mensageiros, guerreiros e protetores ao longo de toda a história redentora.

Eitt sinn er hann var að íhuga þetta á andvökunóttu, sofnaði hann og dreymdi að engill stóð hjá honum og sagði:

„Jósef, sonur Davíðs, hikaðu ekki við að kvænast Maríu, því að barnið sem hún gengur með, er getið af heilögum anda.

Engillinn sagði þá við konurnar: „Verið óhræddar! Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta, en hann er ekki hér. Hann er upprisinn eins og hann sagði. Komið og sjáið hvar líkami hans lá.

Veistu ekki að ég gæti beðið föður minn um þúsundir engla okkur til varnar og hann mundi þegar í stað senda þá?

„Vertu ekki hrædd, María," sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú.

en engillinn hughreysti þá og sagði: „Verið óhræddir! Ég flyt ykkur miklar gleðifréttir sem berast eiga öllum mönnum:

„Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með öllum þeim sem hann elskar."

Á sama hátt gleðjast englar Guðs einnig yfir hverjum þeim syndara sem gerir iðrun."

Til enn frekari útskýringar sagði hann þeim þessa sögu:

En er þeir störðu til himins og reyndu að koma auga á hann, stóðu skyndilega hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum. Þeir sögðu: „Hvers vegna standið þið hér og starið til himins? Jesús er farinn til himna! En dag einn mun hann koma aftur, og þá á sama hátt og hann fór."

Haldið áfram að elska hvert annað með fórnfúsum kærleika. Gleymið ekki gestrisninni því að sumir hafa, óafvitandi, tekið á móti englum.

Þótt ég hefði hæfileika til að tala tungum og talaði öll tungumál, bæði jarðnesk og himnesk, en elskaði ekki aðra, þá væri það ómerkilegt glamur – tilgangslaus orðaflaumur.

Víst er guðrækilegt líferni enginn leikur, en það er þó mögulegt í samfélaginu við Krist. Hann kom til jarðarinnar sem maður. Hann reyndist hreinn og syndlaus í anda sínum og englar þjónuðu honum. Hann var boðaður meðal þjóðanna, hvarvetna trúðu menn á hann og síðan var hann hafinn upp í dýrð himnanna.

Þegar kall erkiengilsins hljómar og básúna Guðs gellur, þá mun Drottinn stíga niður af himni og kristnir menn rísa upp til fundar við hann – fyrst hinir dánu, en síðan við, sem þá verðum á lífi. Við verðum hrifin upp á skýjum ásamt þeim, til að vera með Drottni um alla eilífð.

Sá er sigrar, mun fá hvít klæði og nafnið hans mun ég ekki fjarlægja úr lífsbókinni. Ég mun viðurkenna hann frammi fyrir föður mínum og englum hans.

Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-