Ano novo
O Ano Novo é oportunidade de renovação e consagração. A Bíblia convida a esquecer o que ficou para trás e avançar em fé, confiança e esperança em Deus.
Nei, kæru vinir, enn er ég ekki fullkominn, en þetta er mér efst í huga: Að gleyma fortíðinni og horfa fram á við til þess sem í vændum er. Ég tek á öllu sem ég á til að ná markinu og fá verðlaunin sem Guð hefur heitið okkur á himnum, og allt er það Kristi Jesú að þakka.
Ég er ekki að segja að ég sé fullkominn. Enn hef ég ekki lært allt það sem ég á að læra, en ég stefni að því að verða það sem Kristur frelsaði mig til og vill að ég sé.
Nei, kæru vinir, enn er ég ekki fullkominn, en þetta er mér efst í huga: Að gleyma fortíðinni og horfa fram á við til þess sem í vændum er. Ég tek á öllu sem ég á til að ná markinu og fá verðlaunin sem Guð hefur heitið okkur á himnum, og allt er það Kristi Jesú að þakka.
Ég vona að þið sem þroskuð eruð í trúnni, séuð mér sammála, en ef þið eruð ósammála um eitthvert atriði, þá trúi ég því að Guð muni leiða ykkur í allan sannleikann
Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf!
Gleði – og erfiðleikar
Við skulum þakka Guði, föður Drottins Jesú Krists, sem af mikilli miskunn sinni endurfæddi okkur inn í fjölskyldu sína og gaf okkur lifandi von um nýtt, eilíft líf vegna upprisu Jesú Krists frá dauðum.
Og þegar þú hefur refsað mér, þá gefðu mér gleði mína á ný. Einblíndu ekki á syndir mínar, heldur afmáðu þær allar.
Hvíldu í Drottni og treystu honum. Bíð þess í þolinmæði að hann hefjist handa. Öfunda ekki vonda menn sem vegnar vel.
Engill Drottins stendur vörð um þá sem óttast hann, og hann bjargar þeim.
En umfram allt, látið kærleikann ráða í lífi ykkar, því að þá verður fullkomið samstarf og eining í söfnuðinum. Látið frið Krists búa í hjörtum ykkar, það er skylda ykkar og jafnframt forréttindi sem hluta af líkama hans. Verið þakklát.
Okkar jarðnesku feður öguðu okkur aðeins í nokkur ár og aðeins í góðum tilgangi. Ögun Guðs er alltaf rétt og okkur fyrir bestu, því að hún veitir okkur hlutdeild í heilagleika hans. Refsing er óþægileg meðan á henni stendur, og jafnvel sársaukafull! En hver er árangurinn? Persónuleiki og skilningur mannsins vex og þroskast.
Takið eftir, þið sem segið: „Í dag eða á morgun förum við til þessa eða hins bæjarins og þar ætlum við að dveljast í eitt ár og græða á viðskiptum." Vitið þið nokkuð hvað morgundagurinn ber í skauti sínu? Líf ykkar er jafn hverfult og morgunþokan, sem sést um stund, en hverfur síðan. Segið heldur: „Ef Drottinn vill, þá lifum við og gerum þetta eða hitt." Nú stærið þið ykkur af eigin áformum og slíkt stærilæti er Guði á móti skapi. Sá sem hefur vit á að gera hið góða, en gerir það samt ekki, drýgir synd.