Arca da aliança
A Arca da Aliança era o símbolo mais sagrado de Israel — representava a presença de Deus no meio do seu povo. Sobre ela brilhava a glória do Senhor entre os querubins.
Í fyrri sáttmálanum milli Guðs og Ísraelsmanna voru reglur um tilbeiðslu og þar var einnig rætt um heilagt tjald hér á jörðu. Í þeim helgidómi – tjaldinu – voru tvö herbergi. Í fremra herberginu, sem kallað var hið heilaga, var borð ásamt ljósastjaka úr gulli. Á borðinu voru sérstök brauð, sem notuð voru við helgiathafnir. Síðan tók við fortjald og innan við það var annað herbergi, sem kallaðist „hið allra helgasta". Þar inni var reykelsisaltari úr gulli og einnig kista sem kölluð var sáttmálsörkin. Var hún lögð skíru gulli bæði að utan og innan. Í kistunni voru steinplötur, sem á voru rituð boðorðin tíu, gullkrukka með dálitlu af manna og stafur Arons, sem hafði blómgast. A loki kistunnar voru styttur af englum, svokallaðir kerúbar, sem standa áttu vörð um dýrð Guðs. Þeir þöndu vængi sína yfir hið gullna lok arkarinnar, sem kallaðist náðarstóllinn, en nóg um það.
Nú var musteri Guðs á himnum opnað og þar gat að líta sáttmálsörk hans! Og þrumur og eldingar komu og mikið hagl dundi yfir. Heimurinn nötraði í hrikalegum jarðskjálfta.