Publicidade

Ascensão

Por Bíblia Online

A ascensão de Jesus ao céu é a coroação de sua obra redentora. Ele subiu à destra do Pai, de onde voltará com poder e glória para buscar os seus.

Og Jesús hafði ekki fyrr lokið þessum orðum sínum en hann var hafinn frá jörðu og hvarf í ský, en þeir stóðu einir eftir og störðu á eftir honum.

En er þeir störðu til himins og reyndu koma auga á hann, stóðu skyndilega hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum. Þeir sögðu: Hvers vegna standið þið hér og starið til himins? Jesús er farinn til himna! En dag einn mun hann koma aftur, og þá á sama hátt og hann fór."

Eftir Drottinn Jesús hafði talað til þeirra, var hann numinn upp til himins og settist til hægri handar Guði.

Eftir þetta fór Jesús með þá út veginum, sem liggur til Betaníu, og þar lyfti hann höndum sínum til himins og blessaði þá. En meðan hann var blessa þá, hvarf hann sjónum þeirra og fór til himna.

Heima hjá föður mínum eru margar vistarverur og ég ætla búa þær undir komu ykkar. Þegar allt er reiðubúið, kem ég aftur og sæki ykkur, svo þið getið verið hjá mér alla tíð. Ef þessu væri öðruvísi varið, hefði ég sagt ykkur það.

Ég segi ykkur satt: sem á mig trúir, mun gera sömu kraftaverk og þau sem ég gerði, og jafnvel enn meiri, því ég fer til föðurins. Hvað sem þið biðjið föðurinn um, mun ég gera ef þið biðjið hann um það í mínu nafni. Allt það sem ég, sonurinn, geri fyrir ykkur, verður föður mínum til vegsemdar.

Þegar ég kom í þennan heim, þá kom ég frá föðurnum. Ég yfirgef heiminn á og fer aftur til föðurins."

Snertu mig ekki," sagði hann ákveðinn, því ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. Farðu og finndu bræður þína og segðu þeim ég muni stíga upp til föður míns og föður ykkar, Guðs míns og Guðs ykkar."

Þá sagði Jesús: Bíðið með þetta! Mér ber vera hér enn um stund, en því loknu sný ég aftur til hans sem sendi mig.

Víst er guðrækilegt líferni enginn leikur, en það er þó mögulegt í samfélaginu við Krist. Hann kom til jarðarinnar sem maður. Hann reyndist hreinn og syndlaus í anda sínum og englar þjónuðu honum. Hann var boðaður meðal þjóðanna, hvarvetna trúðu menn á hann og síðan var hann hafinn upp í dýrð himnanna.

Seja o primeiro
Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-