Publicidade

O que é bom

Por Bíblia Online

O que é bom vem de Deus. A Bíblia celebra a bondade divina e nos convida a discernir, praticar e desfrutar tudo o que é bom — porque toda boa dádiva vem do Pai das luzes.

Drottinn er góður og fús að vísa þeim rétta leið, sem villst hafa.

En hvað um mig? Ég vil komast eins nálægt Guði og ég get! Ég hef kosið að trúa á Drottin. Hann er skjól mitt. Ég vil vitna um það í allra áheyrn að margsinnis hefur hann bjargað mér á undursamlega hátt.

Gott er að þakka Drottni og lofsyngja Guði hinum hæsta. Á hverjum morgni segi ég við Drottin: „Þökk sé þér fyrir miskunn þína!" Og á kvöldin fagna ég yfir trúfesti hans.

Því að Drottinn er góður! Miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kynslóð til kynslóðar.

Sjáið hve yndislegt það er þegar systkini búa saman í sátt og samlyndi! Vináttan er dýrmæt!

Þrátt fyrir þetta voru lögin sjálf góð og réttlát.

Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna.

Forðastu að gera það sem þú veist að verður gagnrýnt, enda þótt þú vitir að sú gagnrýni sé ósanngjörn.

Hér koma svo fyrirmæli mín:

Gættu þess að beðið sé fyrir öllum mönnum. Biðjið Guð að miskunna þeim og þakkið honum fyrir það sem hann mun gera fyrir þá.

Þannig skaltu biðja fyrir konungum og öllu fólki í valdastöðum, eða sem hefur mikla ábyrgð, svo að við fáum að lifa heiðvirðu lífi í friði og ró og iðka trú okkar. Slíkt er gott og velþóknanlegt Guði, frelsara okkar,

Allt sem Guð hefur skapað er gott og við getum neytt þess með gleði eftir að hafa þakkað Guði. Það helgast af Guðs orði og bæn.

Allt, sem gott er og fullkomið, kemur frá Guði, skapara ljóssins. Ljómi hans er eilífur og óumbreytanlegur og á hann fellur ekki skuggi.

Salt er gott, en ef það missir seltuna, þá er það gagnslaust. Gætið því að missa ekki seltuna og haldið frið ykkar á milli."

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-