Publicidade

Comunhão com Deus

Por Bíblia Online

A comunhão com Deus é o propósito supremo da existência humana. Fomos criados para viver em intimidade com o Criador — e em Cristo, esse acesso é plenamente restaurado.

Em comunhão com Deus

Deus é fiel, pelo qual fostes chamados à comunhão de seu Filho. A comunhão com Deus é dom da graça e fruto da redenção.

Guð, sem kallaði ykkur til samfélags við son sinn, Jesú Krist, Drottin okkar, mun standa við allt sem hann hefur lofað ykkur – hann er vissulega trúfastur.

Skiljið þið ekki að þið eruð öll hús Guðs og andi Guðs býr með ykkur í því húsi?

Margir líkamshlutar mynda saman einn líkama. Þannig er einnig með líkama Krists – kirkjuna.

Friður Drottins Jesú Krists, kærleikur Guðs og samfélag heilags anda eflist ykkar á meðal.

Páll

Getur nokkurt samband verið milli musteris Guðs og skurðgoðanna? Þið eruð musteri Guðs, bústaður hins lifandi Guðs, og um ykkur segir hann: „Ég vil búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra. Ég mun vera þeirra Guð og þeir munu vera mitt fólk."

Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf!

Allt þetta nýja er frá Guði, sem leiddi okkur aftur til sín með því sem Kristur Jesús gerði. Því næst veitti Guð okkur þau forréttindi að fá að hvetja alla menn til að koma og sættast við hann. Guð sætti heiminn við sig í Kristi og hann ákærir mennina ekki lengur fyrir syndir þeirra, heldur fyrirgefur þeim. Þennan stórkostlega boðskap hefur hann falið okkur að flytja öllum mönnum.

Presença divina

Eis que estou à porta e bato. O Senhor fez sua morada entre nós — e toda a criação é convidada à comunhão eterna.

Taktu eftir! Ég stend fyrir utan og ber að dyrum. Ef einhver heyrir til mín og opnar, mun ég fara inn til hans og setjast til borðs með honum og hann með mér.

Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim.

Því að hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra."

Ég bið ekki aðeins fyrir þessum mönnum, heldur einnig fyrir þeim sem síðar munu trúa á mig fyrir orð þeirra. Faðir, þeir eiga allir að vera eitt eins og við – þú og ég – erum eitt. Þú ert í mér og ég í þér, og þannig eiga þeir einnig að vera í okkur, til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig.

Dýrðina, sem þú gafst mér, hef ég gefið þeim – svo að þeir séu eitt eins og við – ég í þeim og þú í mér – allir fullkomlega sameinaðir þannig að heimurinn komist að raun um að þú hafir sent mig og sjái að þú elskar þá, jafn heitt og þú elskar mig.

Viver na comunhão

Quem permanece nele e ele no Senhor, esse dá muito fruto. A comunhão com Deus produz transformação e alegria.

Þeir, sem hlýða Guði, lifa með Guði og hann með þeim. Við vitum að þetta er satt, því að heilagur andi, sem hann hefur gefið okkur, hefur sagt okkur það.

Við vitum að Kristur, sonur Guðs, kom til að hjálpa okkur til þess að skilja og finna hinn eina sanna Guð. Nú tilheyrum við honum vegna þess að við erum í Jesú Kristi, syni hans. Hann er hinn eini sanni Guð – hann er eilífa lífið.

Guð hefur einnig gefið okkur heilagan anda og það sýnir að við lifum í samfélagi við hann.

Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna að þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi.

Og það, sem við sáum og heyrðum, segjum við ykkur, svo að þið getið átt samfélag við okkur og tekið þátt í þeirri gleði sem við eigum með föðurnum og syni hans, Jesú Kristi.

Börnin mín, rækið samfélagið við Drottin, svo að þið getið verið viss um að ykkur vegni vel þegar hann kemur og að þið þurfið þá ekki að blygðast ykkar eða fara í felur.

Fyrst við erum sýknuð og réttlát í augum Guðs vegna trúarinnar á fyrirheit hans, þá getum við lifað í friði og sátt við hann vegna þess sem Jesús Kristur, Drottinn okkar, gerði fyrir okkur. Vegna trúar okkar hefur hann veitt okkur hin æðstu forréttindi og þannig er aðstaða okkar nú. Við horfum með djörfung og gleði fram til alls þess sem Guð ætlar okkur að verða.

þá skulum við ganga rakleitt fram fyrir Guð. Verum einlæg, með hreina samvisku og treystum því að hann taki á móti okkur, vegna þess að blóði Krists hefur verið „stökkt á okkur" og líkamar okkar verið þvegnir hreinu vatni.

Beygið ykkur því undir vald Guðs. Standið gegn djöflinum og þá mun hann flýja ykkur. Nálgist Guð og þá mun hann nálgast ykkur. Þvoið hendur ykkar, syndarar, og gefið Guði einum rúm í hjörtum ykkar, svo að þau verði heil og hrein.

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-