Comunidade
A comunidade cristã é essencial para o crescimento da fé. A Bíblia ensina que fomos criados para viver em comunhão — edificando-nos, encorajando-nos e servindo uns aos outros.
Viver em unidade
Os que creram eram um coração e uma alma. A comunidade primitiva partilhava tudo e vivia em harmonia e alegria.
Tvenns konar viðhorf til peninga
Hinir trúuðu voru samhuga í öllu og enginn leit á eigur sínar sem einkaeign, heldur áttu þeir allt sameiginlegt.
Þau héldu fast við kenningu postulanna og ræktu samfélagið, brotningu brauðsins og bænirnar.
Þeir komu daglega saman í musterinu, til að lofa Guð og tilbiðja. Einnig hittist fólkið í smáhópum, í heimahúsum, þar sem brauðið var brotið. Þau neyttu fæðunnar með gleði og þakklæti, og vegsömuðu Guð. Þau voru vinsæl meðal allra og Drottinn bætti daglega í hópinn nýju fólki sem lét frelsast.
Er þangað kom fóru þeir í loftstofuna, þar sem þeir héldu til. Lærisveinarnir voru þessir: Pétur, Jóhannes og Jakob, Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon (kallaður „hinn róttæki") og Júdas Jakobsson. Bræður Jesú voru þarna einnig ásamt nokkrum konum, þar á meðal móður Jesú.
Meðan Pétur var í fangelsinu var söfnuðurinn stöðugt í bæn til Guðs fyrir honum.
Því að hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra."
Edificação mútua
Vivam em harmonia uns com os outros. Não haja divisões entre vós. A comunidade cresce quando cada membro contribui.
En, kæru vinir, ég bið ykkur í nafni Drottins Jesú Krists. Hættið þessum deilum ykkar í milli en gætið þess að lifa í sátt og samlyndi, svo að ekki sé klofningur í söfnuðinum. Ég grátbið ykkur: Verið einhuga – sameinuð í hugsun og verki.
Hvert og eitt okkar er hluti af líkama Krists. Sumir eru Gyðingar, aðrir Grikkir, sumir eru þrælar, aðrir frjálsir, en heilagur andi hefur í skírninni tengt okkur öll saman í líkama Krists og öll höfum við fengið hlutdeild í sama heilaga anda.
Eins og líkami ykkar hefur marga limi, eins er líkami Krists. Öll erum við hlutar af honum, og ef hann á að vera heill, þá verðum við að standa saman, því að hvert um sig höfum við mismunandi verk að vinna. Þannig tilheyrum við hvert öðru, og hvert um sig þarf á öllum hinum að halda.
Starfið saman af gleði. Þykist ekki vera vitrir og sækist ekki eftir vinsældum þeirra sem hátt eru settir. Leitið heldur samfélags við þá sem lægra eru settir og látið ykkur ekki detta í hug að þið vitið allt!
Lögmál frelsisins
Sýndu hverjum kristnum manni, sem til þín leitar, vinarhug og gagnrýndu hann ekki þótt trú hans sé veik og hann hafi aðrar skoðanir en þú um hvað sé rétt eða rangt.
Guð, sem uppörvar og eykur þolinmæði og staðfestu, hann hjálpi ykkur til að vera samhuga svo að þið getið umgengist hvert annað með hugarfari Krists.
Forðist þá sem valda sundrungu
Eitt á ég eftir að segja ykkur áður en ég lýk þessu bréfi og það er: Forðist þá sem valda klofningi og sundurþykkju, þá sem fara með rangar kenningar um Krist.
Amor e compromisso
Não deixemos de congregar. O vínculo perfeito é o amor — ele une a comunidade e produz frutos que duram.
Einbeitið ykkur að því að gera hið góða
Gætum hvert að öðru og hvetjum hvert annað til að sýna hjálpsemi og að gera öðrum gott.
Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega nú er endurkoma Jesú nálgast.
En umfram allt, látið kærleikann ráða í lífi ykkar, því að þá verður fullkomið samstarf og eining í söfnuðinum.
Látið heilagan anda leiða ykkur og lifið í sátt og samlyndi.
Sjáið hve yndislegt það er þegar systkini búa saman í sátt og samlyndi! Vináttan er dýrmæt!
Hér eru svo nokkur orð til ykkar allra: Verið sem ein stór og hamingjusöm fjölskylda. Sýnið hvert öðru fyllstu tillitssemi, elskið hvert annað af öllu hjarta og verið auðmjúk.
Kæru vinir, fyrst Guð hefur elskað okkur svo heitt, ber okkur einnig að elska hvert annað,
En ef við lifum í ljósi Guðs á sama hátt og Kristur, þá getum við glaðst og átt dásamlegt samfélag hvert við annað og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar okkur af allri synd.
Nú skiptir engu máli hvort við erum Gyðingar eða Grikkir, frjálsir menn eða þrælar, karlar eða konur. Við erum öll kristin og eitt í Kristi Jesú. Nú tilheyrum við Kristi og erum því sannir afkomendur Abrahams og öll þau loforð sem Guð gaf honum, tilheyra okkur.
Ef ekkjur hafa engan til að sjá fyrir sér, þá á söfnuðurinn að sýna þeim kærleika og annast þær.
Ég segi ykkur sannleikann: Sá sem tekur á móti þeim er ég sendi, tekur á móti mér, og sá sem veitir mér viðtöku, veitir föður mínum viðtöku sem sendi mig."