Deus nos chamou
Deus nos chamou antes da fundação do mundo. Ele nos conhece pelo nome, nos predestinou para sermos conforme a imagem de Cristo e nos capacita para o chamado.
Chamados por Deus
Os que Deus predestinou, também os chamou. O Seu chamado é irrevogável — fundamentado no propósito eterno e na graça abundante.
og við vitum að allt sem gerist í lífi okkar verður til góðs, ef við elskum Guð og lifum í samræmi við vilja hans.
Guð ákvað í upphafi að þeir sem til hans kæmu – hann hefur alltaf vitað hverjir það yrðu – skyldu líkjast syni hans, svo að sonur hans yrði hinn fyrsti í hópi margra systkina. Þegar hann hafði valið okkur, þá kallaði hann okkur til sín og þegar við komum, þá sýknaði hann okkur. Síðan gaf hann okkur kærleika Krists og kom öllu í sátt á milli okkar og sín og hét okkur dýrð sinni.
Ég bið þess að hugur ykkar opnist fyrir ljósi hans, svo að þið getið skilið þá framtíð sem hann vill gefa ykkur og hefur kallað ykkur til. Ég vil að þið gerið ykkur grein fyrir þeim auðæfum sem við höfum eignast, við að taka á móti Kristi Jesú. Svo bið ég þess að skilningur ykkar opnist, svo að þið sjáið hve óendanlega mikill máttur hans er, þeim til hjálpar, sem á hann trúa. Þetta er sami kröftugi mátturinn
Ef þú endurnýjast í þessum krafti frá degi til dags, muntu aldrei blygðast þín fyrir vitnisburðinn um Drottin, eða fyrir mig, þótt ég sé í fangelsi vegna Krists. Þá muntu líka verða reiðubúinn að þjást með mér vegna Drottins, því að hann mun styrkja þig.
Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til að vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess að við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði að auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi. Nú hefur hann framkvæmt þessa áætlun sína og sent okkur Jesú Krist, frelsarann, sem braut vald dauðans á bak aftur og opnaði okkur veg til eilífs lífs fyrir trúna á hann.
En eftir að þið hafið þjáðst skamma hríð, mun Guð, sem birtir kærleika sinn í Kristi, veita ykkur af sinni eilífu dýrð. Hann mun koma sjálfur til að sækja ykkur og leiða ykkur inn í dýrð sína og gera ykkur sterkari en nokkru sinni fyrr.
A resposta ao chamado
Ninguém pode vir a mim se o Pai não o atrair. Deus escolheu os fracos para confundir os fortes — e nos chamou para a luz.
„Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, leiði hann og á efsta degi mun ég reisa hann upp frá dauðum.
Takið eftir, vinir mínir, að fá ykkar sem fylgið Kristi eruð fræg, voldug eða rík. Þess í stað hefur Guð af ásettu ráði kosið að nota það, sem heimurinn telur heimsku og fánýti, til að láta þá verða sér til minnkunar, sem heimurinn telur skynsama og mikla.
Takið eftir, kæru vinir: Guð hefur valið hina fátæku til að auðgast í trúnni og erfa ríki himnanna. Það er gjöfin, sem Guð hefur heitið öllum þeim sem elska hann.
Hann hefur hrifið okkur frá valdi myrkursins, úr ríki Satans, og leitt okkur inn í ríki síns elskaða sonar, sem keypti okkur frelsi með krossdauða sínum og fyrirgaf okkur syndirnar.
Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna, og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda. Kristur hét því að allir skyldu fá gjöf heilags anda, allir sem Drottinn Guð okkar kallar til sín, einnig börnin ykkar og þeir sem búa í fjarlægum löndum."
Confirmando o chamado
Procurai tornar cada vez mais firme a vossa vocação. Deus começou a boa obra e a completará até o dia de Cristo.
Kæru systkini, leitist nú við að sýna að þið séuð í raun og veru meðal þeirra sem Guð hefur kallað og valið, og þá munuð þið aldrei hrasa eða falla. Þá mun Guð opna hlið himnanna fyrir ykkur upp á gátt, svo að þið getið gengið inn í hið eilífa ríki Drottins okkar og frelsara Jesú Krists.
Eitt er víst, Guð, sem byrjaði í ykkur góða verkið, mun halda því áfram þar til það fullkomnast á endurkomudegi Jesú Krists.
Margir eru kallaðir en fáir útvaldir."