Dificuldades
As dificuldades são parte da vida, mas Deus é refúgio certo em todo tempo de angústia. A Bíblia promete que nenhuma adversidade pode separar os filhos de Deus do seu amor.
Deus é refúgio
Deus é nosso refúgio e fortaleza, socorro bem presente nas angústias. Nada poderá nos separar do amor de Cristo.
Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið.
sá sem getur sagt við Drottin: „Þú ert skjól mitt og vörn! Þú ert minn Guð, ég treysti þér!"
Öryggi mitt og farsæld er í hendi Drottins. Hann einn er skjól mitt og klettur – þangað kemst óvinurinn ekki!
En Drottinn lifir að eilífu. Hann situr í hásæti sínu, sker úr málum þjóðanna og dæmir þær með réttvísi. Allir kúgaðir komi til hans. Hann er skjól þeirra og athvarf á neyðarstundu.
Drottinn, þú konungur hinna himnesku hersveita, enginn kemst í samjöfnuð við þig! Trúfestin er einkenni þitt!
En þú ert meiri en voldugar öldur sem brotna við strendur úthafanna!
Hann kyrrir bæði sjó og vind.
Getur þá nokkuð útilokað okkur frá kærleika Krists? Hvað með erfiðleika og ógæfu ýmiss konar? Eru ekki ofsóknir og niðurlæging, sem við verðum fyrir, sönnun þess að hann hafi ekki lengur velþóknun á okkur? Eða hvað um hungur, fátækt og lífshættu? Gefur slíkt ekki til kynna að Guð hafi yfirgefið okkur? Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar. En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur. Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
Provisão nas dificuldades
O Senhor provê mesmo nos tempos mais difíceis. Ele sustentou Elias, protegeu Israel e cuida dos seus com fidelidade eterna.
Um daga breiddi Guð út ský og hlífði þeim gegn brennheitri sólinni og um nætur lýsti hann þeim leiðina með eldstólpa. Þeir báðu um kjöt og hann sendi þeim lynghænsni og brauð gaf hann þeim – manna, brauð frá himni. Hann opnaði klettinn og vatnið spratt fram og varð að læk í eyðimörkinni.
Ungur var ég og nú er ég gamall orðinn, en aldrei sá ég Drottin snúa baki við guðhræddum manni né heldur börn hans biðja sér matar.
Daglega skoðar Drottinn réttlætisverk trúaðra og reiknar þeim eilíf laun. Hann styður þá í kreppunni og heldur lífinu í þeim í hallæri.
Força nas provas
Em tudo somos atribulados, mas não esmagados. O Senhor é bom e é fortaleza no dia da angústia — Ele conhce os seus.
Erfiðleikar þrengja að á báða bóga, en samt höfum við ekki látið undan síga. Við erum oft spyrjandi, því við skiljum alls ekki hvers vegna margt fer eins og það fer, en samt hættum við hvorki né gefumst upp. Við erum ofsóttir eins og frekast er unnt, en Guð sleppir samt aldrei af okkur hendi sinni. Við erum felldir til jarðar, en rísum þó aftur á fætur og höldum leiðar okkar.
„Lítil er trú ykkar," svaraði Jesús. „Hvers vegna eruð þið hræddir?" Síðan reis hann á fætur og hastaði á vindinn og öldurnar. Þá lægði vindinn og allt varð kyrrt! Lærisveinarnir voru orðlausir af undrun og ótta. „Hver er hann eiginlega?" spurðu þeir hver annan, „vindurinn og vatnið hlýða honum!"
Skyldi Guð ekki miklu fremur vilja annast ykkur fyrst honum er svona umhugað um blómin, sem standa í dag en eru fallin á morgun! Æ, þið lítiltrúaðir! Hafið því engar áhyggjur af fæðu eða fötum! Verið ekki eins og heiðingjarnir sem hugsa ekki um annað. Ykkar himneski faðir veit vel að þið þarfnist alls þessa.
En konan flýði út í eyðimörkina, þar sem Guð hafði búið henni stað, og þar yrði hennar gætt í 1.260 daga.
Ég hef gefið ykkur vald yfir öllu óvinarins veldi. Þið getið stigið ofan á höggorma og sporðdreka og marið þá undir fótum ykkar – ekkert mun geta gert ykkur mein.