Esperar no Senhor
Esperar no Senhor é ato de fé e confiança. A Bíblia promete que os que esperam em Deus renovam as forças, recebem direção e experimentam a fidelidade divina no tempo certo.
Renovar as forças
Os que esperam no Senhor renovam as forças. Sobem como águias, correm e não se cansam, caminham e não se fatigam.
Þú, hver sem þú ert, misstu ekki vonina! Treystu Drottni og hann mun frelsa þig! Vertu hugrakkur og djarfur og óttastu ekki. Bíddu um stund og hann mun senda þér hjálp!
En ég treysti því að Drottinn frelsi mig og að ég sjái hjálp hans, því að enn er von, – enn er ég á lífi!
Þú, hver sem þú ert, misstu ekki vonina! Treystu Drottni og hann mun frelsa þig! Vertu hugrakkur og djarfur og óttastu ekki. Bíddu um stund og hann mun senda þér hjálp!
Drottinn er ljós mitt og frelsari, hvern ætti ég að óttast? Hann er skjól mitt og vígi, og því hræðist ég ekki.
Þegar illmenni reyna að uppræta mig, þá hrasa þeir sjálfir og falla. Þótt voldugur her umkringi mig á alla vegu, þá óttast ég ekki hót! Ég er öruggur og veit að Guð mun frelsa mig.
Drottinn, þetta þrái ég mest af öllu: Að hugleiða í helgidómi þínum, og vera frammi fyrir þér alla mína ævidaga. Þar vil ég gleðjast yfir dýrð hans og fullkomnun, hún er engu lík! Þar verð ég öruggur á óheilladeginum – öruggur í skjóli Drottins. Hann lyftir mér upp á háan klett þar sem óvinirnir ná ekki til mín. Þá mun ég færa honum fórnir og lofa hann fagnandi. Drottinn, heyrðu hróp mitt! Ég kalla hátt! Sendu mér miskunn þína og hjálp!
Drottinn, ég minnist þess sem þú sagðir: „Þú þjóð mín, kom þú og leitaðu mín." „Já, Drottinn! Ég kem!" svara ég.
Drottinn, hyl þig ekki fyrir mér. Hafnaðu ekki þjóni þínum í reiði. Þú varst mér skjól þegar á móti blés, yfirgefðu mig ekki. Hafnaðu mér ekki, þú Guð hjálpræðis míns. Þótt faðir minn og móðir vísuðu mér á bug, þá tækir þú mér tveim höndum og huggaðir mig.
Drottinn, hvað á ég til bragðs að taka? Svaraðu mér fljótt! Óvinir umkringja mig! Láttu þá ekki ná mér, Drottinn! Láttu mig ekki falla þeim í hendur! Þeir ásaka mig að ástæðulausu og sitja á svikráðum við mig. En ég treysti því að Drottinn frelsi mig og að ég sjái hjálp hans, því að enn er von, – enn er ég á lífi!
Þú, hver sem þú ert, misstu ekki vonina! Treystu Drottni og hann mun frelsa þig! Vertu hugrakkur og djarfur og óttastu ekki. Bíddu um stund og hann mun senda þér hjálp!
Espera paciente
Esperei com paciência no Senhor e Ele se inclinou para mim. Confie nele e descanse — Ele agirá no tempo certo.
Ég setti alla mína von á Drottin. Hann heyrði kvein mitt og að lokum bjargaði hann mér. Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, hinni botnlausu leðju, og lyfti mér upp á klett. Hann gerði mig styrkan í gangi.
Þá fylltist munnur minn lofsöng – lofgjörð um Guð. Margir hlustuðu er ég söng um velgjörðir hans við mig. Þeir munu einnig lúta honum og lofa hann, setja traust sitt á hann. Þeir sem treysta Drottni verða lánsamir, þeir sem forðast ráð dramblátra og halda sér frá lygi.
Drottinn, Guð minn, mörg dásemdarverk hefur þú gert og mikillar umhyggju höfum við notið. Ekkert kemst í samjöfnuð við þig! Mér endist ekki tími til að rifja upp öll þín undraverk!
Sláturfórnir og matfórnir þráir þú ekki frá lýð þínum, og brennifórnir heimtar þú ekki. Nei, þú þráir að ég þjóni þér alla ævi. Ég sagði: „Sjá, ég kem, rétt eins og orð þitt býður mér. Það að gera vilja þinn, Drottinn minn, þrái ég því að lögmál þitt er ritað á hjarta mitt!"
Ég hef vitnað um það fyrir öllum, aftur og aftur, að þú fyrirgefur syndir. Það veistu Drottinn. Ég hef ekki þagað yfir réttlæti þínu heldur boðað það öllum. Allur söfnuðurinn hefur heyrt mig tala um elsku þína og trúfesti.
Þess vegna, Drottinn minn, taktu ekki miskunn þína frá mér! Ég á allt mitt undir kærleika þínum og náð. Sért þú ekki með mér, er úti um mig. Vandamál mín eru mér ofvaxin, og syndir mínar – sem eru fleiri en hárin á höfði mér – hafa lamað mig. Ég veit ekki mitt rjúkandi ráð.
Ó, Drottinn, ég hrópa til þín! Frelsa þú mig! Komdu fljótt og hjálpaðu mér.
Ég hef sett traust mitt á Drottin. Enginn getur hjálpað nema hann, hann er skjöldur og vígi! Hans vegna gleðjumst við og fögnum. Hans heilaga nafni treystum við. Miskunn þín Drottinn umvefji okkur. Við vonum á þig.
Og þess vegna bið ég og vona og treysti hjálp Guðs, því að hann hefur lofað að hjálpa. Næturverðirnir þrá nýjan dag, en ég þrái Drottin enn meira!
En hvað um þessa menn sem ásaka mig þegar veldi mitt stendur höllum fæti, vilja mig feigan og ljúga og pretta til að steypa mér af stóli. Þeir tala fagurgala, satt er það, en hata mig í hjörtum sínum!
Óttastu ekki, því að Drottinn mun svara bæn þinni! Gakktu hiklaust á hans vegum. Á réttum tíma mun hann veita þér velgengni og uppreisn æru. Þá muntu sjá illvirkjunum útrýmt.
Confiança e perseverança
Confie no Senhor de todo o coração. Sede pacientes na tribulação — o Senhor é fiel e cumprirá todas as suas promessas.
Þegar við lendum í erfiðleikum og raunum þá getum við líka glaðst, því að við vitum að slíkt verður okkur til góðs. Það eflir þolgæði okkar, styrkir persónuleikann og það auðveldar okkur að treysta Guði æ betur, eða þangað til trú okkar verður að lokum sterk og óhagganleg.
Þar að auki biðjum við hann að styrkja ykkur og fylla af sínum dýrlega mætti. Þá getið þið haldið áfram, á hverju sem gengur,
Kæru vinir, verið þolinmóð meðan þið bíðið endurkomu Drottins, eins og bóndinn bíður þess þolinmóður að dýrmæt uppskeran nái fullum þroska. Verið þolinmóð og hugrökk, því að koma Drottins er í nánd.
Nú njóta þeir gleði, því að þeir voru honum trúir, þrátt fyrir þrengingarnar sem það kostaði þá. Job er dæmi um mann, sem treysti Drottni mitt í þjáningunni. Reynsla hans sýnir hvernig áform Drottins varð til góðs, því að Drottinn er ríkur af miskunn og mildi.
Og við það að trúa að Kristur gæti frelsað ykkur, hafa sálir ykkar hreinsast af eigingirni og hatri og því getið þið elskað hvert annað innilega af hjarta.
Nú lifið þið nýju lífi! Þetta nýja líf var ekki gjöf frá foreldrum ykkar, því að það líf sem þau gáfu ykkur, mun fjara út. Nýja lífið mun vara að eilífu, því að það er frá Kristi, honum sem er orð lífsins, boðskapur Guðs til mannanna. Hið jarðneska líf okkar mun visna eins og grasið, sem gulnar og deyr. Jarðnesk fegurð er eins og blóm, sem visnar og fellur, en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra.
Hann er því alls ekki seinn að efna loforðið um endurkomu sína, jafnvel þótt sumum virðist svo. Það veldur bið hans að hann vill ekki að neinir glatist og því gefur hann syndurunum enn frest til að iðrast.
„Himnaríki má líkja við tíu brúðarmeyjar, sem tóku lampa sína og lögðu af stað til móts við brúðgumann.
Aðeins fimm þeirra gættu þess að fylla lampa sína af olíu, en hinar fimm gleymdu því og fóru með tóma lampa. Þegar brúðgumanum seinkaði, syfjaði þær og sofnuðu. En á miðnætti voru þær vaktar með háu hrópi: „Brúðguminn er að koma! Gangið út og takið á móti honum!" Stúlkurnar spruttu á fætur og fóru að sýsla við lampana. Þær fimm sem vantaði olíu, sárbáðu hinar að gefa sér lítið eitt, því það lifði ekki á lömpum þeirra. En hinar svöruðu „Nei, það getum við ekki, því það verður ekki nóg handa okkur öllum. Farið og kaupið olíu handa ykkur." En á meðan þær voru fjarverandi kom brúðguminn. Þær sem viðbúnar voru fóru með honum til brúðkaupsins og dyrunum var læst. Seinna komu hinar til baka og stóðu fyrir utan og kölluðu: „Herra, opnaðu fyrir okkur!" En hann kallaði á móti: „Farið! Þið komið of seint!" Vakið því og verið viðbúnir, því þið vitið hvorki daginn né stundina er ég kem aftur."