Filho de Deus
Jesus é o Filho de Deus — a revelação suprema do Pai. Nele habita toda a plenitude da divindade e por Ele temos acesso ao Pai, à salvação e à vida eterna.
A revelação do Filho
O Filho é o resplendor da glória de Deus. Quem vê o Filho vê o Pai. Jesus é a imagem perfeita do Deus invisível.
Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
Þannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs", en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna.
Kristur fæddist sem maður og bjó hér á jörðinni meðal okkar, fullur náðar og sannleika. Við sáum dýrð hans – dýrð eingetins sonar hins himneska föður.
Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð en einkasonur hans, sem stendur næst föðurnum, hefur kennt okkur að þekkja hann.
Þá sagði hann: „Faðir minn starfar allt til þessa og ég starfa einnig."
Eftir þetta svipuðust leiðtogarnir enn frekar eftir tækifæri til að taka hann af lífi, því að auk þess að brjóta helgidagslöggjöf þeirra, talaði hann um Guð sem föður sinn og gerði sig þar með Guði jafnan.
Confissão e fé
Tu és o Cristo, o Filho do Deus vivo! Quem confessa que Jesus é o Filho de Deus, Deus permanece nele.
Þegar Jesús kom til Sesareu Filippí spurði hann lærisveina sína: „Hvern segir fólk mig vera?" Þeir svöruðu: „Sumir segja að þú sért Jóhannes skírari, aðrir Elía, og enn aðrir Jeremía eða einhver af spámönnunum." „En þið," spurði hann, „hvað segið þið?" Símon Pétur svaraði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs."
Þegar Jesús steig upp úr vatninu að skírninni lokinni, opnuðust himnarnir yfir honum og hann sá anda Guðs koma niður yfir sig, í dúfulíki, og rödd af himni sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á."
Hver sá sem trúir og játar að Jesús sé sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.
Guð hefur sýnt kærleika sinn með því að senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til að deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf. Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.
En ef þið haldið áfram að syndga er það merki þess að þið tilheyrið Satani, honum, sem haldið hefur áfram að syndga allt frá því hann drýgði sína fyrstu synd. Sonur Guðs kom til að brjóta niður verk djöfulsins – syndina.
Sá, sem trúir á son Guðs, á lífið, en sá, sem ekki trúir, á ekki lífið.
Vida no Filho
Deus enviou seu Filho ao mundo para que vivêssemos por Ele. O Filho dá vida, julga e reconcilia os pecadores com o Pai.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. Faðirinn lætur soninn um að dæma syndina, svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.
Og það er líka satt að sú stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína – rödd Guðssonarins – og þeir sem heyra munu lifa. Faðirinn hefur eilíft líf í sjálfum sér og hann hefur einnig veitt syninum sama líf.
Honum var jafnvel hafnað í sínu eigin landi og af eigin þjóð – Gyðingum. Fáir tóku við honum, en öllum þeim sem það gerðu gaf hann rétt og kraft til að verða Guðs börn – þeim sem treystu því að hann gæti frelsað þá. Þeir, sem þannig trúa á hann, endurfæðast! Það er ekki líkamleg endurfæðing – afleiðing mannlegra hvata eða áforma – heldur andleg fæðing og samkvæmt vilja Guðs.
Þegar Kristur var krossfestur, var það vegna óhlýðni minnar og synda. Því er ég krossfestur með honum, sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Það líf sem ég lifi nú í líkamanum er byggt á trú minni á Guðs son, sem elskaði mig og dó í minn stað.
En þegar rétti tíminn kom, sem Guð hafði ákveðið, þá sendi hann son sinn. Hann fæddist af konu sem Gyðingur og varð að lúta öllum lögum Gyðinga, til að kaupa okkur frelsi, okkur sem voru þrælar laganna, svo að hann gæti ættleitt okkur – gert okkur að börnum sínum. Og fyrst við erum börn hans, þá sendi hann anda sonar síns í hjörtu okkar og því getum við nú með sanni sagt að Guð sé faðir okkar.
Við vorum óvinir Guðs, en fyrst hann, þrátt fyrir það, leiddi okkur aftur til sín fyrir dauða sonar síns, hvílíka blessun hlýtur hann þá ekki að hafa búið okkur nú, eftir að við erum orðnir vinir hans?