Filhos de Deus
Ser filho de Deus é o maior privilégio da existência humana. Pela fé em Cristo, recebemos o direito de ser chamados filhos de Deus — herdeiros de Deus e co-herdeiros com Cristo.
O direito de ser filho
A todos que creram no nome de Jesus, deu-lhes o poder de serem feitos filhos de Deus — nascidos não do sangue, mas de Deus.
Honum var jafnvel hafnað í sínu eigin landi og af eigin þjóð – Gyðingum. Fáir tóku við honum, en öllum þeim sem það gerðu gaf hann rétt og kraft til að verða Guðs börn – þeim sem treystu því að hann gæti frelsað þá. Þeir, sem þannig trúa á hann, endurfæðast! Það er ekki líkamleg endurfæðing – afleiðing mannlegra hvata eða áforma – heldur andleg fæðing og samkvæmt vilja Guðs.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
Lærisveinarnir sáu hann gera mörg önnur kraftaverk en þau sem hér hefur verið lýst. En þessi bók er rituð til þess að þú trúir að Jesús sé Kristur, Guðssonurinn, og til þess að þú, með trúnni, eignist lífið í samfélaginu við hann.
Nú erum við börn Guðs fyrir trúna á Jesú Krist, og við sem skírð erum til að sameinast honum, höfum íklæðst honum.
En þegar rétti tíminn kom, sem Guð hafði ákveðið, þá sendi hann son sinn. Hann fæddist af konu sem Gyðingur og varð að lúta öllum lögum Gyðinga, til að kaupa okkur frelsi, okkur sem voru þrælar laganna, svo að hann gæti ættleitt okkur – gert okkur að börnum sínum.
Nú erum við ekki framar þrælar, heldur börn Guðs! Fyrst við erum börn hans, þá erum við um leið erfingjar að öllum eigum hans, og það var einmitt áform Guðs.
A identidade dos filhos
O Espírito testifica com nosso espírito que somos filhos de Deus. E se filhos, também herdeiros — herdeiros de Deus.
því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn. Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba!
Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við!
Þetta þýðir að ekki hafa allir afkomendur Abrahams verið börn Guðs, heldur þeir einir sem trúa loforðinu sem Guð gaf Abraham um hjálpræðið.
Viver como filhos
Vede que grande amor o Pai nos concedeu: que fôssemos chamados filhos de Deus! E é isso que somos.
Kærleikurinn – einkenni Guðs barna
Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn á himnum hefur sýnt okkur, að við megum kallast hans börn og það erum við sannarlega! En fáir þekkja Guð og því skilur fólk ekki að við erum börnin hans.
Próf sem leiðir hið sanna í ljós
Á þessu getum við séð hver er Guðs barn og hver tilheyrir hinum vonda. Hver sem lifir syndugu lífi og er illa við meðbróður sinn, sýnir að hann tilheyrir ekki fjölskyldu Guðs,
Sælir eru þeir sem vinna að friði, því að þeir munu kallaðir verða synir Guðs.
„En þið," spurði hann, „hvað segið þið?" Símon Pétur svaraði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs." „Sæll ert þú, Símon Pétur," svaraði Jesús, „því faðir minn á himnum hefur sjálfur sannfært þig um þetta – þú hefur þetta ekki frá neinum manni.
Leyfðu Guði að aga þig, því að það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? Ef Guð lætur hjá líða að refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið – eins og feður almennt refsa börnum sínum – þá er það merki þess að þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans.