Filhos
Os filhos são herança do Senhor — bênção e responsabilidade sagrada. A Bíblia orienta sobre a criação dos filhos com amor, disciplina e instrução nos caminhos de Deus.
Herança do Senhor
Os filhos são herança do Senhor e o fruto do ventre é seu galardão. Bem-aventurado o homem que enche deles a sua aljava.
Börnin eru gjöf frá Guði, ávöxtur móðurkviðar og laun frá Drottni. Börn sem maður eignast ungur, eru eins og beittar örvar – þau koma síðar að gagni! Sæll er sá maður sem hefur fyllt örvamæli sinn með þeim! Hann mun ekki verða til skammar þegar hann þarf að útkljá deilumál við óvini sína!
Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir.
Honum mun launað með velgengni og hamingju. Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré! Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum.
Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir.
Honum mun launað með velgengni og hamingju. Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré!
Nú vil ég lýsa landinu þar sem Drottinn er Guð – hamingjulandinu! Þar eru synirnir hraustir og stæltir eins og þróttmikil tré. Dæturnar fagrar og prúðar eins og úthöggnar hallarsúlur. Hlöðurnar fullar af alls konar afurðum. Hjarðir þúsunda sauða liðast um hagana. Uxarnir eru klyfjaðir og ekkert skarð í múrnum. Friður hvert sem litið er, enginn maður í útlegð og glæpir horfnir af strætunum. Já, sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði.
Börn hans njóta hvarvetna heiðurs, því að góður arfur eflir göfugan mann.
Instruir e disciplinar
Instrui a criança no caminho em que deve andar, e quando envelhecer não se desviará dele. Disciplina é amor em ação.
O amor de Deus por crianças
Deixai vir a mim as crianças. Jesus acolheu, abençoou e honrou as crianças como modelo de fé e humildade.
Þegar Jesús sá þetta, sárnaði honum, og hann sagði við lærisveinana: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki.
Fyrst þið sem eruð vondir og syndugir menn, hafið vit á að gefa börnunum ykkar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðir ykkar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann?
Jesús óx að visku og vexti og allir elskuðu hann, bæði Guð og menn.
Eins og faðir miskunnar börnum sínum, eins hefur Drottinn miskunnað þeim sem óttast hann,
Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn á himnum hefur sýnt okkur, að við megum kallast hans börn og það erum við sannarlega! En fáir þekkja Guð og því skilur fólk ekki að við erum börnin hans.
Bênção e promessa
O Senhor te abençoe e te guarde. Os filhos dos justos serão abençoados e suas gerações caminharão na retidão.
Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst. Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég sá dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga – sérhver dagur var skráður í bók þína!
Drottinn, oft hefur þú hjálpað mér. Móðir mín fæddi mig heilbrigðan í heiminn og þar varst þú til staðar og gættir mín, eins og öll mín bernskuár. Frá fæðingu hef ég átt allt undir þér. Þú varst minn Guð allt frá fyrstu stundu. Yfirgef mig ekki nú, nei ekki núna á neyðarstundu þegar enginn getur hjálpað nema þú!
Ungur var ég og nú er ég gamall orðinn, en aldrei sá ég Drottin snúa baki við guðhræddum manni né heldur börn hans biðja sér matar. Nei, guðræknir menn eru mildir og lána og börn þeirra verða öðrum til blessunar.
Ég birti ykkur sannleikann, svo að þið getið sagt börnum ykkar frá dásemdarverkum Drottins, öllum þeim undrum sem hann vann.
Criação e obediência
Pais, criai vossos filhos na disciplina e instrução do Senhor. Filhos, obedecei a vossos pais — isto é justo e agradável a Deus.
Þið börn, hlýðið foreldrum ykkar! Það skuluð þið gera, því að Guð hefur falið þeim að bera ábyrgð á ykkur. „Heiðra skaltu föður þinn og móður." Þetta er fyrsta boðorðið af hinum tíu boðorðum Guðs sem endar á loforði. Hvert er þá loforðið? Það er þetta: „Þá muntu lifa langa og blessunarríka ævi."
Foreldrar, hér eru nokkur orð til ykkar. Venjið ykkur ekki á að skamma börn ykkar og jagast í þeim, því þá verða þau afundin og bitur. Alið þau heldur upp í kærleika og með aga, á sama hátt og Drottinn, og þá með ábendingum og góðum ráðum.
Börn! Hlýðið foreldrum ykkar í öllu, því það hæfir þeim sem tilheyra Drottni.
Og þið foreldrar, verið ekki harðir við börn ykkar, því þá missa þau sjálfstraust og fyllast vanmáttarkennd.
Leyfðu Guði að aga þig, því að það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? Ef Guð lætur hjá líða að refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið – eins og feður almennt refsa börnum sínum – þá er það merki þess að þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans.
Ef þær hins vegar eiga börn eða barnabörn, þá ber þeim skylda til að annast þær. Því að kærleikurinn á að eiga upphaf sitt á heimilunum og birtast í aðstoð við foreldrana, það er vilji Guðs.
Það verður líkt og hjá konu sem fæðir barn – angist hennar og kvíði hverfur fyrir fögnuði, þegar hún hefur eignast barnið.