Sinais do fim dos tempos
A Bíblia descreve sinais que precederão a volta de Jesus. Guerras, falsos mestres, sinais cósmicos e a pregação do evangelho a todas as nações — tudo aponta para o fim dos tempos.
Sinais proféticos
Este evangelho do Reino será pregado em todo o mundo e então virá o fim. Os sinais dos últimos tempos já se manifestam.
Gleðiboðskapurinn um guðsríki verður fluttur öllum þjóðum heimsins, og þá loks mun endirinn koma."
„Eftir þessar ofsóknir mun sólin myrkvast og tunglið hætta að lýsa. Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar alheimsins ganga úr skorðum! Þá mun tákn komu minnar sjást á himninum og allir jarðarbúar skelfast. Þeir munu sjá mig koma í skýjum himinsins með mætti og mikilli dýrð. Þegar lúðurinn hljómar, munu englar mínir safna saman þeim sem ég hef valið, úr öllum áttum, heimshorna á milli."
Verið viðbúnir! Þið vitið ekki hvaða dag Drottinn kemur. Innbrotsþjófur gerir ekki boð á undan sér, þess vegna verða menn að vera á verði. Þess vegna verðið þið að vera stöðugt viðbúnir endurkomu minni."
Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar."
En daginn og stundina er þetta gerist, veit enginn, hvorki englarnir né ég, heldur aðeins faðirinn einn.
Os últimos dias
Nos últimos dias virão tempos difíceis, homens amantes de si mesmos. Mas derramarei o meu Espírito sobre toda a carne.
Eitt er það enn sem þér er nauðsynlegt að vita, Tímóteus, á hinum síðustu dögum verður mjög erfitt að vera kristinn. Þá munu menn verða sjálfselskir og ágjarnir. Þeir verða stoltir og hrokafullir, fyrirlíta Guð og verða foreldrum sínum óhlýðnir og vanþakklátir. Illskan mun vaxa á flestum sviðum. Menn verða miskunnarlausir og ófúsir að vægja. Þeim verður eðlilegt að ljúga og sýna ýmiskonar yfirgang. Menn kæra sig kollótta um gott siðferði en verða óheflaðir og grimmir, og fyrirlíta það sem gott er. Þeir munu svíkja vini sína, vera framhleypnir og hrokafullir og elska lífsgæðin meira en Guð. Menn munu að vísu sækja kirkjur, en það mun hafa lítil áhrif á þá. Haltu þér frá slíkum mönnum.
„Á hinum síðustu dögum," segir Guð, „mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Og þá munu synir ykkar og dætur spá, æskumenn ykkar sjá sýnir og aldrað fólk mun dreyma merkilega drauma. Heilagur andi mun koma yfir alla þjóna mína, konur og karla, og þau munu spá. Ég mun láta undur gerast á himni og jörðu – blóð, eld og reykjarmökk. Sólin skal verða svört og tunglið rautt eins og blóð, áður en hinn mikli og dýrlegi dagur Drottins kemur. En hver sem ákallar Drottin mun frelsast."
Esperança e prontidão
O dia do Senhor virá como ladrão. Mas nós não somos das trevas — estejamos sóbrios, vigiliando e esperando.
Það sem ég nú segi byggir á orðum Drottins. Við sem verðum á lífi þegar Drottinn kemur, munum ekki rísa upp til fundar við hann á undan þeim sem þegar eru dánir.
Þegar kall erkiengilsins hljómar og básúna Guðs gellur, þá mun Drottinn stíga niður af himni og kristnir menn rísa upp til fundar við hann – fyrst hinir dánu, en síðan við, sem þá verðum á lífi. Við verðum hrifin upp á skýjum ásamt þeim, til að vera með Drottni um alla eilífð. Huggið og uppörvið hvert annað með þessum orðum.
Verið því allsgáð og sofið ekki á verðinum eins og sumir. Vakið og væntið komu Drottins! Nóttina nota menn til svefns og sumir til að drekka sig fulla, en við, sem lifum í ljósinu skulum vera allsgáð, vernduð brynju trúar og kærleika og með hjálm hjálpræðisins á höfði. Guð hefur ekki kallað okkur til refsingar,
Gætið ykkar! Látið endurkomu mína ekki koma ykkur í opna skjöldu; látið mig ekki rekast á ykkur eins og alla aðra, andvaralausa, við veisluhöld, drykkjuskap og niðursokkna í áhyggjur lífsins. Verið á verði og biðjið, að ef mögulegt er, þá mættuð þið komast hjá þessum hörmungum og standast frammi fyrir mér."
En gleymið því nú ekki, kæru vinir, að í augum Drottins er einn dagur jafn langur og þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. Hann er því alls ekki seinn að efna loforðið um endurkomu sína, jafnvel þótt sumum virðist svo. Það veldur bið hans að hann vill ekki að neinir glatist og því gefur hann syndurunum enn frest til að iðrast.
Dagur Drottins mun vissulega koma. Hann mun koma óvænt, líkt og þjófur, og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný og frumefni alheimsins brenna upp í eldi. Þá mun jörðin eyðast og allt sem á henni er.
Skyldum við ekki þurfa að lifa heilögu og guðrækilegu lífi, fyrst allt umhverfis okkur leysist upp á þennan hátt? Horfið fram til þess dags með eftirvæntingu og flýtið fyrir honum, deginum er Guð lætur himnana brenna, frumefnin bráðna og leysast upp í logum. Samkvæmt loforði Guðs væntum við nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem allt er í samræmi við vilja Guðs.
En nú segi ég ykkur furðulegan og dásamlegan leyndardóm: Við munum ekki öll deyja, en þó munum við öll fá nýjan líkama – við munum umbreytast! Allt mun þetta gerast á svipstundu, þegar síðasti lúðurinn hljómar. Þá munu allir kristnir menn, sem dánir eru, rísa upp, íklæddir nýjum líkömum, sem aldrei hrörna eða deyja. Þeir sem þá verða enn á lífi, munu allt í einu umbreytast og fá nýjan líkama eins og hinir.
Eftir þetta sá ég nýjan himin og nýja jörð. Hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og höfin voru ekki lengur til. Þá sá ég, Jóhannes, borgina helgu, hina nýju Jerúsalem! Hún kom niður af himninum frá Guði. Þetta var dýrleg sjón! Borgin var fögur eins og brúður á brúðkaupsdegi.
Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim. Hann mun strjúka hvert tár af augum þeirra og dauðinn mun ekki framar verða til. Þar verður engin sorg, enginn grátur og engin kvöl, allt slíkt er horfið og kemur aldrei aftur."