Juízo
O juízo de Deus é manifestação de sua justiça e soberania. Ele julga o mundo, julga as nações e julga cada coração com perfeita equidade e misericórdia.
O juízo de Deus
Deus é juiz justo que prova os corações. Seu juízo é verdadeiro e alcança toda obra, secreta ou pública.
Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. Faðirinn lætur soninn um að dæma syndina, svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.
Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, að hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. Og það er líka satt að sú stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína – rödd Guðssonarins – og þeir sem heyra munu lifa. Faðirinn hefur eilíft líf í sjálfum sér og hann hefur einnig veitt syninum sama líf. Og hann hefur veitt honum rétt til að dæma syndir allra manna, því að hann er mannssonurinn. Látið það ekki koma ykkur á óvart, en sú stund er svo sannarlega skammt undan, er allir hinir dauðu, sem í gröfunum eru, munu heyra rödd Guðssonarins og rísa upp. Þeir sem gott hafa gert til eilífs lífs, en þeir til dóms, sem lagt hafa stund á hið illa.
Ég dæmi engan án þess að ráðfæra mig fyrst við föður minn. Dómur minn er í fullu samræmi við hans vilja, réttvís og sanngjarn, því að hann er ekki aðeins samkvæmt mínum vilja heldur einnig samkvæmt vilja Guðs sem sendi mig.
Þegar ég fullyrði eitthvað um sjálfan mig, trúið þið mér ekki,
Ég segi ykkur satt, það er ykkur til góðs að ég fari, því að fari ég ekki, þá mun hjálparinn ekki koma. En ef ég fer, þá kemur hann, því að ég mun senda hann til ykkar.
Þegar hann kemur, mun hann sannfæra heiminn um synd hans, um að Guð réttlæti syndara og um að dómurinn sé staðreynd. Hann mun sannfæra heiminn um að syndin felist í því, að þeir trúi ekki á mig.
Þá sagði Jesús við fólkið: „Röddin kom ykkar vegna, en ekki mín vegna. Nú er stund dómsins runnin upp yfir þennan heim. Og þá verður Satan, höfðingja þessa heims, varpað á dyr. Ég verð hafinn upp (á krossinum) og mun draga alla til mín."
„Já, Drottinn," sagði maðurinn, „ég trúi." Og hann veitti Jesú lotningu og kraup við fætur hans.
Jesús sagði þá við hann: „Ég kom í heiminn til að opna augu blindra og loka augum þeirra sem halda sig sjá."
Prestando contas
Cada um prestará contas de si mesmo a Deus. O juízo começa pela casa de Deus e depois alcança os que não obedecem ao evangelho.
Sýndu hverjum kristnum manni, sem til þín leitar, vinarhug og gagnrýndu hann ekki þótt trú hans sé veik og hann hafi aðrar skoðanir en þú um hvað sé rétt eða rangt. Þú ættir til dæmis ekki að deila við hann um hvort leyfilegt sé að borða kjöt, sem notað hefur verið í fórn til skurðgoðanna, eða ekki. Slíkt er þér ef til vill ekkert vandamál, en trú hans er veikari en þín og honum finnst það vera rangt og því neytir hann alls ekki kjöts, sé það fórnarkjöt, heldur grænmetis. Þeir sem ekkert sjá athugavert við það að borða slíkt kjöt, mega ekki líta niður á þá sem láta þess óneytt og sért þú einn þeirra, þá skaltu ekki gagnrýna þá sem hafa aðra skoðun, því að Guð hefur tekið þá að sér sem sín börn. Þeir eru þjónar Guðs en ekki ykkar. Látið Guð um að segja þeim hvort þeir hafi á réttu eða röngu að standa, því hann er fullkomlega fær um að gera það.
Sérhvert okkar verður að standa Guði reikningsskil á lífi sínu, hættið því að gagnrýna hvert annað! Reynið heldur að lifa þannig að þið verðið aldrei trúsystkinum ykkar að falli og látið þau því ekki sjá ykkur gera neitt það sem þau álíta vera rangt.
Ég er þess fullviss, vegna samfélags míns við Drottin Jesú, að ekkert er rangt við það að neyta kjöts sem fórnað hefur verið skurðgoðunum, en ef einhver álítur það rangt, þá ætti hann ekki að neyta þess trúar sinnar vegna.
Stund dómsins er runnin upp og hann hefst á fólki Guðs. Ef við, sem kristin erum, hljótum dóm, hlýtur eitthvað óttalegt að bíða þeirra sem aldrei hafa viljað trúa á Drottin.
Gætið þess því að fella ekki dóma áður en Drottinn kemur, um það hvort einhver er góður þjónn eða ekki. Þegar Drottinn kemur, mun hann varpa ljósi á allt, svo að hver og einn geti séð greinilega hvernig við erum innst inni. Þá munu allir sjá og vita hvers vegna við höfum verið að vinna verk Drottins. Á þeim degi mun Guð veita hverjum manni það hrós sem hann á skilið.
Eins og þú ert við aðra, munu þeir verða gagnvart þér. Hvers vegna hefur þú áhyggjur af flísinni í auga bróður þíns? Þú ert sjálfur með planka í auganu! – Já, heilan bjálka! Er rétt af þér að segja: „Vinur, leyfðu mér að hjálpa þér að fjarlægja þessa flís úr auganu á þér," meðan þú sérð alls ekki til vegna plankans sem er í þínu eigin auga?
Justiça e redenção
O juízo de Deus é também redenção. Ele livrou Israel do Egito com juízos e salva os arrependidos pela cruz de Cristo.
Þvoðu mig hreinan af syndasekt minni. Hreinsaðu hjarta mitt
Jerúsalem og borgirnar í Júda hafa heyrt af réttvísi þinni, Drottinn, og fagna, því að þú ríkir með reisn yfir allri jörðinni og ert hátt yfir alla aðra guði hafinn.
Allt er eins og rjúkandi rúst, eins og brunninn skógur. Með öxum sínum og sleggjum hjuggu þeir og brutu allan útskurðinn. Þeir kveiktu í musterinu og gjöreyddu helgidóm þinn, Drottinn.
Eftir þetta heyrði ég mikinn fjölda á himnum hrópa og segja: „Hallelúja! Dýrð sé Guði! Hjálpin kemur frá Guði. Hans er mátturinn og dýrðin, því að dómar hans eru réttlátir og sannir. Hann refsaði skækjunni miklu, sem spillti jörðinni með syndum sínum, og hann hefur hefnt fyrir morðin á þjónum sínum."
Aftur og aftur var endurtekið: „Dýrð sé Guði! Reykurinn frá rústum hennar mun stíga upp um alla eilífð!"