Mudança de vida
A mudança de vida é possível em Cristo. Não importa o passado, qual foi o erro ou quão fundo a queda — Deus renova, restaura e transforma completamente aquele que se volta para Ele.
Nova vida em Cristo
Se alguém está em Cristo, nova criação é. Deus nos dá coração novo, mente renovada e esperança para o futuro.
Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf!
Og þegar þú hefur refsað mér, þá gefðu mér gleði mína á ný. Einblíndu ekki á syndir mínar, heldur afmáðu þær allar. Skapaðu í mér nýtt og hreint hjarta, ó Guð! Gefðu mér þinn heilaga anda svo að ég hugsi rétt og þrái það sem gott er.
Kæru vinir, bræður og systur, ég minni ykkur á að fyrst Guð hefur miskunnað ykkur þá skuluð þið gefast Guði heilshugar sem lifandi, heilög og honum þóknanleg fórn. Það er skynsamleg guðsdýrkun.
Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna.
Þegar Kristur var krossfestur, var það vegna óhlýðni minnar og synda. Því er ég krossfestur með honum, sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Það líf sem ég lifi nú í líkamanum er byggt á trú minni á Guðs son, sem elskaði mig og dó í minn stað.
Passos para a transformação
A mudança começa com confissão, fé e decisão. Deus é fiel para perdoar e completar a boa obra que começou em nós.
En ef við játum syndir okkar fyrir Guði, getum við treyst því að hann fyrirgefi þær og hreinsi okkur af öllu ranglæti. Í þessu gerir Guð rétt, því að Kristur dó til þess að taka burt syndir okkar.
Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki að þakka honum, því að hann svarar bænum. Þá mun friður Guðs, sem er ofar öllum skilningi, fylla hjörtu ykkar og hugsanir, vegna þess að þið tilheyrið og treystið Kristi Jesú.
Starfaðu af trúmennsku svo að Guð geti gefið þér góðan vitnisburð og þú þurfir ekki að blygðast þín þegar Guð prófar verk þín. Þú verður að þekkja orð hans, vita hvað það segir og hvað það þýðir.
Coragem para mudar
Não temas, porque Deus está contigo. Ele nos fortalece para sermos sal da terra e nos dá palavras que edificam e transformam.
Þið eruð salt jarðarinnar, þið eigið að bæta heiminn! Hvernig færi ef þið misstuð seltuna? Þið yrðuð einskis nýt eins og rusl sem fleygt er út og fótum troðið.
Forðist allt óhreint tal. Segið það eitt sem gott er, og getur orðið til hjálpar og blessunar þeim sem á hlusta.
Þetta er ástæða þess að við gefumst aldrei upp. Þótt líkamar okkar hrörni smátt og smátt, þá vex styrkur okkar í Drottni dag frá degi. Erfiðleikar okkar eru smámunir einir, sem vara munu stuttan tíma. Þessir skammvinnu erfiðleikar leiða þó ríkulega blessun Guðs yfir líf okkar – blessun sem vara mun til eilífðar! Þess vegna horfum við ekki á það sem við sjáum þessa stundina, erfiðleikana sem eru allt í kring um okkur, heldur fram til þeirrar gleði á himnum sem við munum sjá. Þrengingarnar eru skammvinnar en fögnuðurinn, sem í vændum er, mun aldrei taka enda.