Namoro e sexo
Namoro e sexo são temas que a Bíblia trata com clareza e sem tabus. Deus criou o sexo como bênção dentro do casamento e nos chama à pureza fora dele.
Pureza sexual
A vontade de Deus é a santificação. Cada um saiba controlar seu próprio corpo em santidade e honra, não na paixão do desejo.
Því að Guð vill að þið séuð heilög og hrein og forðist allt lauslæti. Sérhver umgangist maka sinn í heilagleik og sæmd, en ekki í brennandi girnd eins og heiðingjarnir, sem hvorki þekkja Guð né vilja hans.
Takið til dæmis matinn. Guð hefur gefið okkur matarlyst og maga til að melta. En það þýðir ekki að við eigum að borða meira en við þurfum. Fæðan er ekki mikilvæg, því að Guð mun á sínum tíma gera að engu bæði mat og maga. Saurlífi á aldrei rétt á sér. Líkamar okkar voru ekki skapaðir til þess, heldur handa Drottni, og Drottinn vill sjálfur helga líkama okkar.
Sá sem þráir þetta í einlægni reynir að varðveita hreinleika sinn, því að Kristur er hreinn.
Arrependimento e restauração
Bem-aventurado aquele cujo pecado é perdoado. Deus restaura os que se arrependem e cria neles um coração limpo e renovado.
Hvílík náð að fá syndir sínar fyrirgefnar! Það er dásamlegt þegar afbrotin eru strikuð út! En sá léttir hverjum játandi syndara að heyra Drottin segja: „Ég sýkna þig."
Sú var tíðin að ég þrjóskaðist við og neitaði að iðrast. En synd mín kvaldi mig og nagaði öllum stundum. Ég var friðlaus bæði nætur og daga og fann að Drottinn áminnti mig. Styrkur minn þvarr eins og lækur sem þornar á heitu sumri. Að lokum játaði ég synd mína fyrir þér, viðurkenndi afbrotin. Ég sagði: „Ég vil játa það allt fyrir Drottni," og þá fyrirgafstu mér! Sekt mín var strikuð út!
Þess vegna segi ég: Þú sem trúir, játaðu synd þína strax fyrir Guði, já, strax og samviskan angrar þig. Notaðu tímann meðan fyrirgefning Guðs stendur þér til boða. Annars vofir dómurinn yfir þér.
eftir að Natan spámaður hafði birt honum dóm Guðs vegna hórdóms hans með Batsebu og morðsins á Úría eiginmanni hennar.
Þú góði og miskunnsami Guð, ó, fyrirgefðu mér! Vertu mér náðugur! Taktu burt synd mína og skömm! Þvoðu mig hreinan af syndasekt minni. Hreinsaðu hjarta mitt
Syndugur var ég þegar móðir mín fæddi mig, sekur þegar ég varð til. Þú vilt að menn séu hreinskilnir við sjálfa sig, einlægir og segi satt. Gefðu mér náð til að gera það!
Þvoðu mig að ég verði hreinn, hreinsaðu mig svo ég verði hvítari en snjór. Og þegar þú hefur refsað mér, þá gefðu mér gleði mína á ný. Einblíndu ekki á syndir mínar, heldur afmáðu þær allar. Skapaðu í mér nýtt og hreint hjarta, ó Guð! Gefðu mér þinn heilaga anda svo að ég hugsi rétt og þrái það sem gott er.