Nascimento
O nascimento é obra das mãos de Deus. Cada criança é formada por Ele no ventre materno com propósito e amor. A Bíblia celebra a vida desde a concepção até a eternidade.
O nascimento de Jesus
O maior nascimento da história mudou o curso da humanidade. Jesus nasceu de uma virgem pelo poder do Espírito Santo, conforme as profecias.
Aðdragandinn að fæðingu Jesú var á þessa leið: María móðir hans var trúlofuð Jósef. Hún varð þunguð af völdum heilags anda meðan hún var enn ósnortin mey. Jósef, unnusti hennar, sem var mjög sómakær maður, ákvað þá að slíta trúlofuninni í kyrrþey, því að hann vildi ekki valda henni opinberri smán.
Eitt sinn er hann var að íhuga þetta á andvökunóttu, sofnaði hann og dreymdi að engill stóð hjá honum og sagði:
„Jósef, sonur Davíðs, hikaðu ekki við að kvænast Maríu, því að barnið sem hún gengur með, er getið af heilögum anda. Hún mun eignast son, og þú skalt láta hann heita Jesú (sem þýðir Guð frelsar), því að hann mun frelsa þjóð sína frá syndum hennar.
Þannig mun rætast það sem spámaður Guðs sagði: „Takið eftir! Meyjan mun þunguð verða! Hún mun fæða son og hann verða kallaður „Immanúel" (en það þýðir Guð er með okkur)"."
Þegar Jósef vaknaði, ákvað hann að gera eins og engillinn hafði sagt honum og ganga að eiga Maríu, þau höfðu þó ekki kynmök fyrr en eftir að sonurinn var fæddur. Og Jósef gaf drengnum nafnið Jesús.
Mánuði síðar sendi Guð engilinn Gabríel til meyjar sem María hét og bjó í þorpinu Nasaret í Galíleu. Hún var trúlofuð manni að nafni Jósef og var hann af ætt Davíðs konungs.
„Vertu ekki hrædd, María," sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú. Hann mun verða mikill og kallast sonur Guðs. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs konungs, ættföður hans, og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!"
„Hvernig má það vera?" spurði María, „ég hef ekki karlmanns kennt." Engillinn svaraði: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Guðs mun umlykja þig, barnið þitt verður því heilagt sonur Guðs.
Formados desde o ventre
Deus nos teceu no ventre de nossa mãe. Antes de nascermos, Ele já nos conhecia e nos separou para um propósito sagrado.
Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst. Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég sá dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga – sérhver dagur var skráður í bók þína!
„Er þetta sá sem treysti Drottni fyrir málum sínum?" segja þeir og hlæja. „Sá sem taldi sig öruggan um velþóknun Guðs? Því trúum við ekki fyrr en við sjáum Drottin hjálpa honum."
Drottinn, oft hefur þú hjálpað mér. Móðir mín fæddi mig heilbrigðan í heiminn og þar varst þú til staðar og gættir mín, eins og öll mín bernskuár. Frá fæðingu hef ég átt allt undir þér. Þú varst minn Guð allt frá fyrstu stundu. Yfirgef mig ekki nú, nei ekki núna á neyðarstundu þegar enginn getur hjálpað nema þú!
Frá fæðingu hefur þú vakað yfir mér og verndað mig – skyldi ég ekki vegsama þig?!
Crianças — bênção e promessa
Jesus acolheu as crianças e disse: delas é o Reino dos céus. Os filhos são herança do Senhor e motivo de alegria para os pais.
En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki."
Sá sem er auðmjúkur, eins og þetta litla barn, verður mestur í himnaríki. Ef þið, sem lærisveinar mínir, takið vel á móti barni eins og þessu, þá takið þið á móti mér.
Síðan tók hann börnin í fang sér, lagði hendur yfir þau og blessaði.
Börnin eru gjöf frá Guði, ávöxtur móðurkviðar og laun frá Drottni.
Syngið honum lof og leikið undir á hörpu og gígju.
Nascer de novo
Jesus ensinou que é preciso nascer de novo para ver o Reino de Deus. O novo nascimento é espiritual — pelo Espírito e pela Palavra.
„Ég segi þér satt, Nikódemus," sagði Jesús, „ef þú endurfæðist ekki muntu aldrei komast inn í guðsríki."
Það verður líkt og hjá konu sem fæðir barn – angist hennar og kvíði hverfur fyrir fögnuði, þegar hún hefur eignast barnið.
Sá sem er fæddur inn í fjölskyldu Guðs, syndgar ekki af ásettu ráði, því að Guð lifir í honum. Hann getur ekki haldið áfram í synd, því að hann hefur öðlast nýtt líf frá Guði. Guð hefur vakið það innra með honum og stjórnar honum, hann hefur endurfæðst.