Nova aliança
A Nova Aliança é o pacto de graça que Deus estabeleceu através de Jesus Cristo. Diferente da antiga, ela é escrita no coração, mediada pelo sangue de Cristo e acessível a todos.
A profecia da Nova Aliança
Jeremias profetizou uma aliança nova em que Deus escreveria sua lei no coração do povo. Essa promessa se cumpriu em Cristo.
En Kristur, prestur himnanna, fékk að launum miklu mikilvægara starf en þeir sem þjóna samkvæmt gömlu lögunum. Nýi sáttmálinn, sem hann færði okkur frá Guði, hefur að geyma miklu stórkostlegri loforð en hinn gamli.
Gamli sáttmálinn reyndist einfaldlega ónothæfur. Ef hann hefði komið að gagni, hefði ekki þurft að koma annar nýr í hans stað.
Guð segir um þessi nýju loforð og þennan nýja sáttmála að þau eigi eftir að taka sæti gamla sáttmálans, því að sá sé orðinn úreltur og hafi verið lagður til hliðar fyrir fullt og allt.
Á grundvelli þessa heitis, getur Kristur að eilífu tryggt árangurinn af þessu nýja og betra fyrirkomulagi.
Selada com sangue
Jesus instituiu a Nova Aliança na Última Ceia: 'Este cálice é a nova aliança no meu sangue.' Seu sacrifício é definitivo e perfeito.
Á sama hátt tók hann bikarinn eftir kvöldmáltíðina og mælti: „Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði sem fyrir ykkur er úthellt.
Og hann tók bikar með víni, gjörði þakkir, rétti þeim og sagði: „Drekkið allir hér af, því þetta er blóð mitt, innsigli nýja sáttmálans. Því er úthellt til syndafyrirgefningar fyrir marga.
þá getið þið rétt ímyndað ykkur hvort blóð Krists muni ekki breyta hjörtum okkar og lífi! Fórn hans leysir okkur undan þeirri kvöð að þurfa að hlýða gömlu reglunum og kemur því jafnframt til leiðar að við þráum að þjóna lifandi Guði. Kristur lagði líf sitt af frjálsum vilja í hendur Guðs, með hjálp heilags anda, til að deyja fyrir syndir okkar. Hann var fullkominn og syndlaus – algjörlega lýtalaus. Kristur færði okkur þennan nýja sáttmála til þess að allir þeir, sem boðnir eru, geti komið og notið um eilífð þeirrar blessunar sem Guð hefur heitið þeim. Kristur dó til að forða okkur undan refsingunni, sem við höfðum kallað yfir okkur, vegna syndanna sem við drýgðum meðan gamli sáttmálinn var í gildi.
Þegar maður deyr og skilur eftir sig erfðaskrá, þá fær enginn neitt af arfinum fyrr en sannast hefur að sá, er gerði erfðaskrána, sé dáinn. Erfðaskráin gengur ekki í gildi fyrr en sá er látinn, sem hana gerði, og meðan hann er á lífi, getur enginn notfært sér hana til að komast yfir þær eignir sem honum eru ánafnaðar.
Þetta skýrir hvers vegna blóði fórnardýranna var úthellt (en það bendir einmitt fram til dauða Krists) og það meira að segja áður en fyrri sáttmálinn tók gildi. Eftir að Móse hafði afhent fólkinu lögbók Guðs, tók hann blóð kálfa og geita ásamt vatni og stökkti því með ísópsgrein og skarlatsrauðri ull yfir sjálfa bókina og allt fólkið. Síðan sagði hann: „Blóð þetta er tákn þess að sáttmálinn milli ykkar og Guðs hefur tekið gildi, en þennan sáttmála bauð Guð mér að gera milli ykkar og sín."
Hið gamla lagakerfi Gyðinga gaf aðeins óljósa hugmynd um allt hið góða, sem Kristur ætlaði að veita okkur. Fórnirnar, sem færðar voru samkvæmt þessu gamla lagakerfi, voru endurteknar sí og æ, ár eftir ár, en samt sem áður gátu þær ekki frelsað neinn sem lifði eftir lögunum. Ef svo hefði verið, þá hefði ein fórn verið nóg, menn hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og sektarkennd þeirra þar með verið fjarlægð. En það var öðru nær. Í stað þess að létta á samvisku manna, minnti þessi árlega fórn þá á óhlýðni þeirra og sekt. Það er útilokað að blóð nauta og geita geti hreinsað burt syndir nokkurs manns.
Reconciliação e vida nova
Pela Nova Aliança somos reconciliados com Deus, trazidos para perto pelo sangue de Cristo e feitos embaixadores da reconciliação.
Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf!
Allt þetta nýja er frá Guði, sem leiddi okkur aftur til sín með því sem Kristur Jesús gerði. Því næst veitti Guð okkur þau forréttindi að fá að hvetja alla menn til að koma og sættast við hann. Guð sætti heiminn við sig í Kristi og hann ákærir mennina ekki lengur fyrir syndir þeirra, heldur fyrirgefur þeim. Þennan stórkostlega boðskap hefur hann falið okkur að flytja öllum mönnum. Við erum erindrekar Krists. Við biðjum í Krists stað: Sættist við Guð! Guð lagði syndir okkar á Krist, sem var syndlaus, en í staðinn jós hann kærleika sínum yfir okkur.
Við þorum að tala svona vel um okkur sjálf vegna þess að við treystum því að Guð hafi velþóknun á okkur, vegna trúar okkar á Krist. Við treystum því að hann hjálpi okkur að standa við orð okkar. Við álítum okkur sjálfa, í eigin mætti, ekki færa um að gera neitt það sem hefur varanlegt gildi. Allur árangur okkar og máttur er Guði einum að þakka. Hann einn hefur gert okkur kleift að kunngjöra fagnaðarerindið – nýja sáttmálann – sem hann gaf mönnunum til frelsis. Við erum ekki að boða lögmál Gyðinga, heldur líf í heilögum anda. Gamla leiðin – sú að reyna að frelsast með því að halda lög Gyðinga – endar með dauða, en ef við förum nýju leiðina, þá gefur andi Guðs okkur hið sanna líf.
Því skuluð þið ekki gleyma að eitt sinn voruð þið heiðingjar og Gyðingarnir kölluðu ykkur guðlaus og „óhrein". (Hjörtu þeirra voru reyndar líka óhrein, enda þótt þeir hefðu haldið fast við allar sínar trúarvenjur og látið umskera sig sem tákn um guðrækni.) Minnist þess að á þeim tíma þekktuð þið alls ekki Krist, þið voru óvinir þeirra sem tilheyra Guði og vissuð ekki að Guð vildi hjálpa ykkur. Þið voru glötuð, guðvana og vonlaus.
Nú tilheyrið þið Kristi Jesú! Þótt þið væruð áður fyrr langt frá Guði, eruð þið nálæg honum nú. Allt er það því að þakka, sem Jesús Kristur gerði fyrir ykkur með dauða sínum.
Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.