Nova criatura
Em Cristo somos nova criação. O velho se foi, tudo se fez novo. A transformação não é reforma — é renascimento completo pelo poder do Espírito Santo.
Novas criaturas em Cristo
Se alguém está em Cristo, nova criação é. As coisas velhas passaram e eis que tudo se fez novo. A transformação é radical e total.
Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf!
Það skiptir ekki lengur máli hvort við erum umskornir eða ekki. Það sem máli skiptir er hvort við erum orðin ný sköpun – nýjar manneskjur.
Guð einn hefur gert okkur að því sem við erum og gefið okkur nýtt líf í Kristi Jesú, og hann ákvað fyrir löngu að þetta nýja líf skyldum við nota öðrum til hjálpar.
Þá sagði sá sem í hásætinu sat: „Sjá, ég geri alla hluti nýja!" Síðan sagði hann við mig: „Nú skaltu skrifa, því að þessi orð eru sönn:
Despir o velho e vestir o novo
Somos chamados a despir o velho homem e vestir o novo, criado segundo Deus em justiça e santidade provenientes da verdade.
eigið að leggja af ykkar gömlu hegðun. Þá var líf ykkar rotið og spillt af tælandi girndum. Héðan í frá verða viðhorf ykkar og hugsanir að breytast til hins betra. Þið eigið að vera sem nýir menn. Menn sem lifa allt öðru lífi en þið lifðuð áður – heilagir og góðir menn. Klæðist þessu nýja lífi eins og nýrri flík.
Ljúgið ekki framar hvert að öðru. Það tilheyrði ykkar gamla og óhreina lífi, sem er dautt og grafið. Nú lifið þið nýju lífi, sem felst í því að læra að þekkja vilja Guðs og líkjast Kristi meir og meir.
Okkar gamla eðli, sem elskaði syndina, var grafið með honum í skírninni þegar hann dó. Og þegar Guð faðir reisti hann aftur til lífsins með dýrlegum krafti, þá eignuðumst við hlutdeild í lífi hans.
Við erum orðin samgróin honum og þegar hann dó, þá dóum við með honum. Nú eigum við sameiginlega hlutdeild í nýja lífinu hans og munum rísa upp á sama hátt og hann.
Þegar Kristur var krossfestur, voru gömlu og illu hvatirnar okkar krossfestar með honum. Þessar hvatir sem þrá syndina, voru særðar til ólífis. Líkami okkar er því ekki lengur á valdi syndarinnar og þarf ekki að vera þræll hennar. Þegar við dóum syndinni, vorum við leyst undan öllu því táli og valdi sem hún beitti okkur.
Þegar Kristur var krossfestur, var það vegna óhlýðni minnar og synda. Því er ég krossfestur með honum, sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Það líf sem ég lifi nú í líkamanum er byggt á trú minni á Guðs son, sem elskaði mig og dó í minn stað.
Coração e Espírito novos
Deus promete dar um coração novo e um espírito novo. Pelo novo nascimento somos feitos participantes da natureza divina.
„Ég segi þér satt, Nikódemus," sagði Jesús, „ef þú endurfæðist ekki muntu aldrei komast inn í guðsríki."
Fyrir sinn volduga mátt, gat hann gefið okkur öll dýrlegu loforðin, sem við höfum fengið frá honum. Þar á meðal er loforðið um að frelsa okkur frá allri girnd og spillingu, sem alls staðar er, og gefa okkur hlutdeild í sínu eigin guðlega eðli.