Publicidade

A nova jerusalém

Por Bíblia Online

A Nova Jerusalém é a cidade de Deus que desce do céu, morada eterna dos redimidos. Nela não haverá mar, morte, choro nem dor — Deus habitará com seu povo para sempre.

A cidade celestial

João viu a santa cidade, a Nova Jerusalém, descendo do céu como noiva adornada para o esposo. Ali Deus morará com seu povo.

Þá sá ég, Jóhannes, borgina helgu, hina nýju Jerúsalem! Hún kom niður af himninum frá Guði. Þetta var dýrleg sjón! Borgin var fögur eins og brúður á brúðkaupsdegi.

Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim. Hann mun strjúka hvert tár af augum þeirra og dauðinn mun ekki framar verða til. Þar verður engin sorg, enginn grátur og engin kvöl, allt slíkt er horfið og kemur aldrei aftur."

Ég sá í sýninni að hann fór með mig upp á hátt fjall og þaðan sá ég borgina dýrlegu, hina heilögu Jerúsalem, koma niður af himni frá Guði. Hún var full af dýrð Guðs og glóði eins og gimsteinn. Það glampaði á hana eins og slípaðan jaspis. Múrarnir voru háir og breiðir og tólf englar gættu hliðanna tólf, sem á þeim voru. Nöfn hinna tólf ættkvísla Ísraels voru rituð á hliðin. Borgin hafði fjórar hliðar og voru þrír inngangar á hverri hlið, en hliðarnar sneru í norður, suður, austur og vestur. Múrarnir höfðu tólf undirstöðusteina og á þá voru rituð nöfn hinna tólf postula lambsins.

Musteri sá ég ekkert í borginni, því að Drottinn Guð hinn almáttki og lambið eru tilbeðin um alla borgina. Borgin þarf hvorki á sólarljósi né tunglskini að halda, því að dýrð Guðs og lambsins lýsa hana upp.

Síðan benti hann mér á fljót lífsvatnsins. Það rann silfurtært frá hásæti Guðs og lambsins og niður aðalgötuna. Sitt hvoru megin við fljótið óx lífsins tré og ber það ávöxt tólf sinnum á ári, eina uppskeru í mánuði hverjum, og blöðin eru notuð til lækninga fyrir þjóðirnar.

Í borginni finnst ekkert illt, því að þar er hásæti Guðs og lambsins og þjónar hans munu tilbiðja hann. Þeir munu sjá auglit hans og nafn hans mun vera skrifað á enni þeirra. Þar verður aldrei nótt og því engin þörf fyrir lampa eða sól, því að Drottinn Guð mun lýsa þeim og þeir munu ríkja um alla eilífð.

A pátria celestial

Os patriarcas aguardavam uma cidade que tem fundamentos, cujo arquiteto e construtor é Deus. Nosso lar eterno está além desta vida.

en það vildu þau ekki. Takmark þeirra var himinninn. Guð blygðast sín því ekki fyrir að kallast Guð þeirra og nú hefur hann reist þeim borg á himnum.

Nú eruð þið komin að Síonfjalli, til borgar lifandi Guðs, hinnar himnesku Jerúsalem, til fundar við óteljandi engla, til kirkju Krists, sem telur alla sem skráðir eru á himnum, til Guðs, sem alla dæmir, til hinna endurleystu anda, sem fullkomnir eru orðnir, til sjálfs Jesú, sem færði okkur nýjan og dásamlegan sáttmála sinn, og til blóðsins, sem úthellt var og veitir náð og fyrirgefningu í stað þess að hrópa á hefnd, eins og blóð Abels.

Okkar höfuðborg er hins vegar hin himneska Jerúsalem og sú borg er ekki þrælkuð af lögum Gyðinga.

„Látið ekki óttann ná tökum á ykkur. Treystið Guði og treystið mér. Heima hjá föður mínum eru margar vistarverur og ég ætla að búa þær undir komu ykkar. Þegar allt er reiðubúið, kem ég aftur og sæki ykkur, svo að þið getið verið hjá mér alla tíð. Ef þessu væri öðruvísi varið, hefði ég sagt ykkur það.

A glória da Nova Jerusalém

Deus habitará no meio do seu povo. Sua presença será a luz da cidade, e o rio da vida fluirá do trono de Deus e do Cordeiro.

Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!

Taktu eftir! Ég kem skjótt! Haltu fast því sem þú hefur, svo að enginn taki kórónu þína.

Þann sem sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns. Þar mun hann standa að eilífu og ekki haggast og á hann mun ég rita nafn Guðs míns. Hann mun tilheyra borg Guðs, hinni nýju Jerúsalem, sem kemur niður af himni frá Guði, og á hann mun verða skráð mitt nýja nafn.

Ef einhver tekur burt einhvern af þessum spádómum, þá mun Guð taka frá honum hlut hans í lífsins tré og borginni helgu sem áður var lýst.

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-