O papel da mulher
A Bíblia honra a mulher como colaboradora essencial no plano de Deus. De Provérbios 31 às mulheres do Novo Testamento, a Escritura celebra a sabedoria, a força e a fé feminina.
A mulher virtuosa
Mulher virtuosa, quem a achará? Seu valor excede o de rubis. Ela é sábia, trabalhadora, generosa e temida pelo Senhor.
Beleza interior
A beleza verdadeira não é exterior, mas o caráter incorruptível de um espírito manso e tranquilo. Isso tem grande valor diante de Deus.
Reglur fyrir hamingjusamt heimili
Eiginkonur, hlýðið eiginmönnum ykkar. Það skuluð þið gera, jafnvel þótt þeir láti sér fátt um finnast þegar þið segið þeim frá Drottni, því að síðar meir kunna þeir að ávinnast vegna vandaðs lífernis ykkar.
Hugsið ekki of mikið um skartgripi, hárgreiðslu og glæsileg föt. Fegurð ykkar á að vera innri fegurð hjartans, en hún birtist í hógværri og blíðri lund, sem er dýrmæt í augum Guðs. Það var slík fegurð sem einkenndi heilagar konur fyrri alda. Þær treystu Guði og hlýddu eiginmönnum sínum.
Sara er dæmi um slíka konu. Hún hlýddi eiginmanni sínum Abraham og bar virðingu fyrir honum sem húsbónda heimilisins. Ef þið farið eins að, fetið þið í fótspor hennar eins og þið væruð dætur hennar og gerið það sem rétt er. Þá eigið þið ekki á hættu að reita menn ykkar til reiði.
Eiginmenn, hugsið vel um konur ykkar! Sjáið þeim fyrir þörfum þeirra og berið virðingu fyrir þeim sem hinu veikara kyni. Munið að þið og konur ykkar meðtakið sameiginlega blessun Guðs. Ef þið komið fram við þær öðruvísi en ykkur ber, er hætt við að bænir ykkar beri engan árangur.
Sama er að segja um konurnar. Þær eiga að vera hæglátar, næmar á góða siði og snyrtilegan klæðaburð. Trúaðar konur eiga að vekja athygli fyrir hlýleik og góða framkomu en ekki hárgreiðslu, skartgripi eða dýran klæðnað.
Konur eiga að vera siðprúðar, en ekki raupsamar. Þær stjórnist af hófsemi og séu trúar í öllu.
Parceria e dignidade
Deus criou homem e mulher à sua imagem. A mulher não é inferior, mas parceira e co-herdeira da graça da vida.
En minnist þess að samkvæmt vilja Drottins, þarfnast maður og kona hvers annars, því að þótt fyrsta konan hafi komið frá manninum, eru allir karlmenn síðan fæddir af konum og bæði konur og karlmenn koma frá Guði, skaparanum.
Eiginkonur, lútið eiginmönnum ykkar eins og um Drottin væri að ræða. Eiginmaður ber ábyrgð á konu sinni, á sama hátt og Kristur ber ábyrgð á líkama sínum, kirkjunni, en hann gaf líf sitt til að vernda hana og frelsa. Eiginkonur, lútið mönnum ykkar í öllu og það fúslega, á sama hátt og söfnuðurinn er undirgefinn Kristi.
Segðu öldruðum konum að vera hæglátar og grandvarar í öllu, eins og trúuðum sæmir. Þær eiga hvorki að vera rógberar né drykkfelldar, heldur til fyrirmyndar í hinu góða. Þær kenni ungum konum að vera hæglátar, elska eiginmenn sína og börn, sýna grandvarleik og hafa hreint hugarfar, hugsa um heimili sitt og sýna eiginmönnum sínum góðvild og hlýðni, svo að fólk lasti ekki trúna þeirra vegna.