Preocupação
A preocupação é uma das maiores armadilhas da vida moderna. Jesus ensinou que a ansiedade nada acrescenta à nossa vida e nos convida a confiar na provisão do Pai celestial.
Não se preocupe
Jesus disse: não andeis ansiosos pela vossa vida. O Pai celestial sabe do que precisamos e cuida de nós com ternura e fidelidade.
Ráðlegging mín er þessi: Hafið engar áhyggjur af mat, drykk, fatnaði eða því um líku. Þið eigið nú þegar líf og líkama, og það er miklu dýrmætara en fæðan og fatnaðurinn.
Kvíðið ekki morgundeginum því hann er einnig í hendi Guðs. Lifið einn dag í senn.
Jarðvegurinn þar sem þyrnarnir uxu, táknar mann sem heyrir boðskapinn, en lætur áhyggjur lífsgæðakapphlaupsins kæfa orð Guðs, og fjarlægist Guð smátt og smátt.
Fólk flykktist nú að honum tugþúsundum saman, svo að hver tróð annan undir. Þá tók hann að tala við lærisveinana og sagði: „Varið ykkur á faríseunum. Þeir þykjast vera góðir, en svo er ekki. Slíka hræsni er þó ekki hægt að dylja mjög lengi. Hún verður eins augljós og gerið í deiginu. Allt sem sagt er í myrkrinu, heyrist í birtunni, og það sem þið hafið pískrað í skúmaskotum, verður hrópað af húsþökum svo allir heyri!
Vinir mínir, verið ekki hræddir við þá sem geta deytt líkamann, þeir geta ekki meira og hafa ekkert vald yfir sálinni. Ég skal segja ykkur hvern þið eigið að óttast – það er Guð. Hann hefur vald til að taka líf ykkar og kasta ykkur í helvíti.
Hvað kosta fimm spörfuglar? Varla meira en tvo smápeninga? Samt gleymir Guð engum þeirra. Hann veit líka hve mörg hár eru á höfði ykkar! Verið ekki kvíðafullir, því að þið eruð miklu meira virði í hans augum en margir spörvar.
Ég segi ykkur: Hvern þann sem játar trú á mig frammi fyrir mönnunum, mun ég, Kristur, viðurkenna frammi fyrir englum Guðs. En þeim sem afneitar mér frammi fyrir mönnunum, mun verða afneitað frammi fyrir englum Guðs. Þeir sem lastmæla mér geta þó fengið fyrirgefningu, en þeim sem lastmæla heilögum anda mun aldrei verða fyrirgefið.
Þegar þið verðið að svara til saka frammi fyrir leiðtogum þjóðarinnar og forstöðumönnum samkomuhúsanna, verið þá ekki áhyggjufullir yfir því hvað þið eigið að segja til varnar. Því að heilagur andi mun gefa ykkur rétt orð á réttum tíma."
Þá kallaði einhver úr mannþrönginni: „Herra, segðu bróður mínum að skipta með okkur föðurarfi okkar."
„Heyrðu vinur," svaraði Jesús, „hver setti mig dómara og skiptaráðanda yfir ykkur? Gætið ykkar! Sækist ekki stöðugt eftir því sem þið eigið ekki. Lífið er ekki tryggt með eignunum, jafnvel þótt miklar séu."
Síðan sagði hann þeim dæmisögu: „Ríkur maður átti gott bú og fékk mikla uppskeru. Hlöðurnar voru yfirfullar, svo að hann kom ekki öllu fyrir. Hann hugsaði málið. „Nú veit ég hvað ég geri," sagði hann við sjálfan sig. „Ég ríf þessar hlöður og byggi aðrar stærri og þá verður nóg pláss! Eftir það fer ég mér hægt og segi við sjálfan mig: Jæja vinur, nú áttu birgðir til margra ára. Nú skaltu hvílast og njóta lífsins svo um munar."
En Guð sagði við hann: „Heimskingi! Í nótt muntu deyja og hver fær þá allt sem þú hefur eignast?"
Þannig fer fyrir þeim sem safnar auðæfum, en er ekki ríkur hjá Guði."
Jesús sagði við lærisveina sína: „Hafið ekki áhyggjur af því hvort þið hafið nóg að borða eða föt til að vera í. Lífið er miklu meira en föt og fæði. Sjáið hrafnana. Þeir sá hvorki né uppskera og ekki hafa þeir forðabúr né hlöður, en samt komast þeir af, því að Guð fæðir þá. Þið eruð miklu dýrmætari en fuglarnir í augum Guðs!
Hvaða vit er í áhyggjum? Gera þær eitthvert gagn? Geta þær lengt líf þitt um einn dag? Nei, sannarlega ekki! Til hvers er þá að hafa áhyggjur, fyrst þær geta ekki komið slíkum smámunum til leiðar?
Lítið á liljurnar! Þær hvorki vinna né spinna, en samt komst Salómon í öllum sínum skrúða ekki í samjöfnuð við þær. Þið efasemdamenn! Hvers vegna haldið þið að Guð muni ekki sjá ykkur fyrir fötum, hann sem skrýðir blómin, sem standa í dag, en falla á morgun? Verið ekki heldur kvíðnir vegna matar, hvað þið eigið að borða eða drekka. Nei, hafið ekki áhyggjur af því, það gera hinir guðlausu, en faðirinn á himnum veit hvers þið þurfið með. Ef þið leitið vilja Guðs með líf ykkar framar öllu öðru, þá annast hann þarfir ykkar frá degi til dags.
Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því faðirinn hefur gefið ykkur ríki sitt. Seljið eigur ykkar og gefið þeim sem þurfandi eru og þá munuð þið eignast ótæmandi fjársjóð á himnum! Slíkur fjársjóður mun aldrei rýma né skemmast, því þar eru hvorki þjófar né verðbólga. Þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hugur þinn vera.
Verið viðbúin, alklædd og reiðubúin til starfa, því að húsbóndi ykkar er væntanlegur úr brúðkaupinu. Verið viðbúin að opna dyrnar og hleypa honum inn um leið og hann ber að dyrum. Þeir sem eru viðbúnir og bíða komu hans hafa ástæðu til að hlakka til. Hann mun sjálfur leiða þá til sætis og meira að segja þjóna þeim til borðs, en þeir fá að njóta matarins í næði. Ef til vill kemur hann klukkan níu að kvöldi, eða þá á miðnætti. En hvort sem hann kemur þá eða síðar verður mikil gleði hjá þeim þjónum, sem viðbúnir verða. Ef þeir vissu nákvæmlega hvenær hann kæmi, mundu þeir allir vera viðbúnir, rétt eins og þeir væru á verði, ef von væri á þjófi. Verið því ávallt viðbúin, því að ég, Kristur, kem fyrirvaralaust."
Þá spurði Pétur: „Herra, segir þú þetta aðeins við okkur eða á það við um alla?"
Drottinn svaraði: „Orð mín eiga erindi til allra þeirra sem trúir eru og grandvarir, þeirra sem húsbóndinn hefur falið þá ábyrgð að annast hina þjónana. En húsbóndinn mun snúa aftur og sjái hann þá að þjónninn hefur verið samviskusamur, mun hann launa honum. Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar!
En hugsi þjónninn sem svo: Húsbóndi minn er ekki væntanlegur nærri strax. Tekur síðan upp á því að berja fólkið sem hann á að annast og eyða tímanum í svall og samkvæmislíf. Þá mun húsbóndi hans koma fyrirvaralaust og lífláta hann, því að það er hlutskipti hinna ótrúu. Sá maður fær þunga refsingu, því að hann gerði ekki skyldu sína þótt hann vissi hver hún væri. Sá sem hins vegar gerir rangt án þess að vita það, hlýtur aðeins væga refsingu. Mikils verður krafist af þeim sem mikið hafa hlotið, því að ábyrgð þeirra er meiri en hinna.
Ég kom til þess að kveikja eld á jörðinni. Ó, hve ég vildi að hann væri þegar kveiktur! Hræðileg skírn bíður mín og ég er angistarfullur uns henni er lokið.
Haldið þið að ég hafi komið til að stilla til friðar á jörðinni? Nei! Nærvera mín veldur sundrungu og deilum. Upp frá þessu munu fjölskyldur klofna: Þrír með mér og tveir á móti – eða öfugt. Faðir mun taka sína afstöðu, en sonurinn aðra. Móðir og dóttir verða ósammála og tengdadóttirin mun hafna áliti hinnar virtu tengdamóður."
Síðan sneri hann sér að mannfjöldanum og sagði: „Þegar þið sjáið ský myndast í vestri, segið þið: „Nú kemur skúr," – og það er alveg rétt. Sé hann suðlægur, þá segið þið: „Það verður þurrt í dag," og það er líka rétt. Hræsnarar! Þið eigið gott með að átta ykkur á veðrinu, en þið virðið ekki viðlits þær viðvaranir sem alls staðar blasa við, og boða erfiða tíma. Hvers vegna viljið þið ekki gera ykkur grein fyrir staðreyndum?
Segjum svo að þú sért á leið til réttarins ásamt ákæranda þínum. Reyndu þá að sættast við hann áður en dómarinn fær málið í hendur, því að hann mun áreiðanlega dæma þig í fangelsi og þaðan losnarðu ekki fyrr en þú hefur greitt síðustu krónuna."
Entregar a ansiedade a Deus
Lançar sobre o Senhor toda ansiedade é um ato de fé. A paz de Deus, que excede todo entendimento, guarda nosso coração e mente.
Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki að þakka honum, því að hann svarar bænum. Þá mun friður Guðs, sem er ofar öllum skilningi, fylla hjörtu ykkar og hugsanir, vegna þess að þið tilheyrið og treystið Kristi Jesú.
Varpið öllum áhyggjum ykkar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
Orðin á tungu hans voru ljúf og blíð en hjartað fullt af hatri.
Drottinn, þegar efasemdir ásækja mig og hjarta mitt er fullt af angist, þá gefðu mér frið þinn og endurnýjaðu gleði mína.
Máttur minn er þrotinn og ég er örvæntingu nær.
A paz de Cristo
Jesus prometeu sua paz — não como o mundo dá, mas uma paz que transcende as circunstâncias e silencia o medo.
Frið skil ég eftir hjá ykkur, minn frið gef ég ykkur. Minn friður er ekki hverfull eins og sá friður sem heimurinn gefur, verið því hvorki kvíðafullir né hræddir.
„Látið ekki óttann ná tökum á ykkur. Treystið Guði og treystið mér.
En þegar þið verið yfirheyrðir sem fangar, hafið þá ekki áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja ykkur – segið það sem Guð minnir ykkur á. Það verða ekki þið sem talið, heldur heilagur andi!
Confiança na provisão divina
Deus é poderoso para suprir abundantemente. O choro pode durar uma noite, mas a alegria vem pela manhã. Sua graça basta.
Guð mun uppfylla þarfir ykkar með því að veita ykkur allt sem þið þurfið, og meira til, svo að þið hafið nóg fyrir ykkur sjálf og getið gefið öðrum með gleði.
Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim. Hann mun strjúka hvert tár af augum þeirra og dauðinn mun ekki framar verða til. Þar verður engin sorg, enginn grátur og engin kvöl, allt slíkt er horfið og kemur aldrei aftur."