Preservação das escrituras
A Palavra de Deus permanece para sempre. As Escrituras foram preservadas por Deus ao longo dos milênios para instrução, consolação e guia de todas as gerações.
A Palavra eterna
Céus e terra passarão, mas as palavras de Deus jamais passarão. Sua Palavra é eterna, infalível e imutável — a verdade que sustenta tudo.
Enginn veit daginn né stundina
„Himinn og jörð munu hverfa, en mín orð standa að eilífu.
Ég segi ykkur satt: Hver einasta grein lögbókarinnar mun standa óhögguð uns tilgangi hennar hefur verið náð.
Hið jarðneska líf okkar mun visna eins og grasið, sem gulnar og deyr. Jarðnesk fegurð er eins og blóm, sem visnar og fellur, en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra.
Nú lifið þið nýju lífi! Þetta nýja líf var ekki gjöf frá foreldrum ykkar, því að það líf sem þau gáfu ykkur, mun fjara út. Nýja lífið mun vara að eilífu, því að það er frá Kristi, honum sem er orð lífsins, boðskapur Guðs til mannanna. Hið jarðneska líf okkar mun visna eins og grasið, sem gulnar og deyr. Jarðnesk fegurð er eins og blóm, sem visnar og fellur, en orð Drottins mun vara að eilífu. Boðskapur Guðs er fagnaðarerindið, sem þið hafið fengið að heyra.
A inspiração divina
Toda Escritura é inspirada por Deus. Homens santos falaram da parte do Senhor, e a Palavra escrita é a expressão fiel da vontade divina.
Biblíuspádómarnir eru ekki uppfinning spámannanna, heldur var það heilagur andi, sem í þeim bjó, sem flutti þeim sannleiksboðskap frá Guði.
Guð hefur talað
Fyrr á tímum talaði Guð með ýmsu móti til forfeðra okkar fyrir milligöngu spámannanna (til dæmis í sýnum, draumum eða jafnvel augliti til auglitis) og sagði þeim þannig smátt og smátt frá fyrirætlunum sínum.
Á okkar dögum hefur hann hins vegar talað til okkar með tungu sonar síns, sem hann hefur gefið alla hluti. Sonarins vegna skapaði hann heiminn og allt sem í honum er.
Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
Kristur fæddist sem maður og bjó hér á jörðinni meðal okkar, fullur náðar og sannleika. Við sáum dýrð hans – dýrð eingetins sonar hins himneska föður.
A Palavra como guia e tesouro
A Palavra de Deus é lâmpada para os pés, espada do Espírito e tesouro para o coração. Guardá-la e meditá-la nos protege do pecado.
Ég hef íhugað orð þín af kostgæfni og varðveitt þau í hjarta mínu svo að þau verndi mig frá því að syndga.
Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans. Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins. Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin – einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi. Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið. Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.
Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa.
Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra." Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull.
því að hjálpræðið sem fæst fyrir trú á Krist – einmitt það sem við predikum – er alltaf innan seilingar.
Sannleikurinn er sá að það er eins nálægt okkur og hjarta okkar og munnur!
Samt er það svo að trúin kemur af því að hlusta á gleðiboðskapinn – gleðiboðskapinn um Krist.
Hvað um Gyðingana? Hafa þeir heyrt orð Guðs? Já, það hefur fylgt þeim hvert sem þeir hafa farið og gleðiboðskapurinn hefur verið fluttur um alla heimsbyggðina.
Þessi orð Gamla testamentisins voru skrifuð fyrir löngu og eiga að kenna okkur þolinmæði og vera til uppörvunar, svo að við getum horft full eftirvæntingar fram til þess tíma er Guð hefur sigrað synd og dauða að fullu.
Það er einnig bæn mín að þið fáið sjálf að reyna og skilja, eins og öll börn Guðs ættu að gera, hversu víður og langur, djúpur og hár, kærleikur hans er. Kærleikur hans er svo mikill að þið munuð aldrei geta þekkt hann eða skynjað til fulls. Þannig mun Guð fylla og auðga líf ykkar með elsku sinni og blessun.
Slíkt er gott og velþóknanlegt Guði, frelsara okkar, því hann vill að allir frelsist og læri að þekkja sannleikann.