Pular para o conteúdo
Publicidade

I. Korintubréf 1:10-13

10 En, kæru vinir, ég bið ykkur í nafni Drottins Jesú Krists. Hættið þessum deilum ykkar í milli en gætið þess að lifa í sátt og samlyndi, svo að ekki sé klofningur í söfnuðinum. Ég grátbið ykkur: Verið einhuga – sameinuð í hugsun og verki.

11 Nokkrir þeirra sem búa heima hjá Klóe hafa sagt mér frá rifrildi ykkar og deilum, kæru vinir. 12 Sum ykkar segja: „Ég fylgi Páli!" Aðrir segjast fylgja Apollós eða Pétri, og enn aðrir Kristi. 13 Þannig hafið þið í reynd skipt Kristi í marga hluta!

Hef ég, Páll, þá dáið fyrir syndir ykkar? Eða var nokkurt ykkar skírt í mínu nafni?

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.