18 Mér er vel ljóst hve þeim sem glatast finnst heimskulegt að heyra að Jesús Kristur hafi dáið til að frelsa þá. En við, sem frelsumst, fáum að reyna að þessi boðskapur er sjálfur kraftur Guðs. 19 Því Guðs orð segir: „Ég mun gera að engu allar mannlegar tilraunir til að frelsast; hversu skynsamlegar sem þær virðast vera, og láta mig engu varða bestu hugmyndir manna, jafnvel þær snilldarlegustu."
20 Og hvað um þessa spekinga, þessa lærðu menn og snjöllu, sem vit hafa á öllu milli himins og jarðar? Guð hefur gert þá alla hlægilega og sýnt fram á að speki þeirra er tóm vitleysa. 21 Því að Guð kom því svo fyrir af visku sinni að menn gætu aldrei fundið hann með mannlegri snilli. Síðan greip hann sjálfur inn í og frelsaði alla þá sem trúðu boðskap hans, sem heimurinn telur heimskulegt þvaður. 22 Gyðingum finnst hann fávíslegur, því að þeir vilja tákn frá himni sem sönnun þess að það sem boðað er sé satt. Heiðingjum hins vegar finnst hann þvaður, af því að þeir trúa því einu sem er í samræmi við heimspeki þeirra og það sem þeir kalla skynsemi. 23 Svo þegar við boðum að Kristur hafi dáið til að frelsa mennina, þá hneykslast Gyðingar, en heiðingjarnir segja að slíkur boðskapur nái ekki nokkurri átt. 24 En Guð hefur opnað augu þeirra sem kallaðir eru til að frelsast, bæði Gyðinga og heiðingja, svo að nú sjá þeir að Kristur er kraftur Guðs, þeim til hjálpræðis. Kristur er sjálfur þungamiðja hinnar máttugu fyrirætlunar Guðs þeim til björgunar. 25 Þessi svokallaða „heimskulega fyrirætlun Guðs" er mun skynsamlegri en gáfulegasta úrræði hinna mestu spekinga. Guð í vanmætti sínum – þegar Kristur dó á krossinum – er stórum máttugri en nokkur maður.