Pular para o conteúdo
Publicidade

1 Coríntios 10

1 Gleymum aldrei, vinir mínir, því sem kom fyrir þjóð okkar í eyðimörkinni forðum. Guð vísaði þeim veginn með skýi sem fór á undan þeim, og leiddi þá heilu og höldnu yfir Rauðahafið. 2 Þetta mætti kalla skírn þeirra til fylgdar við Móse því þeir voru skírðir bæði í hafinu og skýinu. 3,4 Og á yfirnáttúrlegan hátt sendi Guð þeim fæðu eta og vatn drekka þarna í miðri eyðimörkinni þeir drukku vatnið sem Kristur gaf þeim. Hann var þar hjá þeim eins og klettur og veitti andlega svölun og endurnæringu. 5 En þrátt fyrir allt þetta, þá óhlýðnuðust flestir þeirra Guði og hann lét þá falla í eyðimörkinni.

6 Af þessu sjáum við við eigum ekki girnast það sem illt er, eins og þeir gerðu, 7 tilbiðja hjáguði, eins og þeir. Biblían segir: Fólkið settist niður til eta og drekka og stóð upp til dansa kring um gullkálfinn.

8 Önnur aðvörun felst í því sem gerðist þegar sumir þeirra drýgðu hór. Afleiðing þess var 23.000 þeirra dóu á einum degi! 9 Misbjóðið ekki heldur þolinmæði Drottins, það gerðu þeir og dóu því af höggormsbitum. 10 Kvartið ekki gegn Guði og verkum hans, eins og þeir gerðu, munið Guð sendi engil sinn til eyða þeim. 11 Allt þetta henti þá, okkur til viðvörunar. Þessir atburðir voru færðir í letur til þess við gætum lesið um þá og lært af þeim er endalok heimsins nálgast.

12 Gætið því ykkur. Hugsið ekki sem svo: Þannig mundi ég aldrei hegða mér, þetta kemur aldrei fyrir mig! Látið þetta ykkur kenningu verða, því þið gætuð líka gert rangt. 13 En munið þetta: Þær girndir sem þið þurfið takast á við í lífi ykkar, eru ekkert nýtt eða einstakt. Margir hafa áður orðið kljást við sömu vandamál og þið. En engin freisting er óyfirstíganleg. Þið getið treyst því Guð muni ekki leyfa freistingunni sigra ykkur. Þessu hefur hann lofað og hann stendur við orð sín. Hann mun sýna ykkur leið til komast undan freistingunni, til þess þið getið staðist hana ef þið viljið. 14 Gætið þess, vinir mínir umfram allt, forðast hvers konar hjáguðadýrkun.

Þið getið ekki leikið tveim skjöldum

15 Þið eruð skynsemdarfólk. Dæmið því um það sem ég ætla segja: 16 Þegar við biðjum um blessun Guðs yfir bikarinn, sem við drekkum af við heilaga kvöldmáltíð, þýðir það þá ekki allir, sem drekka af honum, njóti saman blessunar af blóði Krists? Og þegar við brjótum brauðið og neytum þess saman, þá sýnir það við njótum öll sameiginlega gjafa líkama hans. 17 Ekki skiptir máli hve mörg við erum, við neytum öll af sama brauði og sýnum þar með við erum öll limir á líkama Krists. 18 Eins er með Gyðingana, allir sem borða fórnarkjötið eru sameinaðir, bæði innbyrðis og í Guði, í þeirri athöfn.

19 Hvað er ég reyna segja? Er ég segja skurðgoðin, sem heiðingjarnir færa fórnir, séu lifandi og raunverulegir guðir og kjöt, þeim fórnað, verði fyrir illum áhrifum? Nei, alls ekki. 20 Ég á við þeir, sem fórna til þessara skurðgoða, eru sameinaðir í því fórna til illra anda en alls ekki Guðs og ég vil ekki neitt ykkar eigi samfélag við illa anda. 21 Þið getið ekki drukkið af bikar Drottins og einnig af bikar Satans. Þið getið ekki meðtekið brauð við máltíð Drottins og einnig við borð illra anda.

22 Eigum við reita Drottin til reiði? Erum við öflugri en hann? 23 Auðvitað megið þið borða mat sem fórnað hefur verið skurðgoðum, ef þið viljið. Neysla slíks kjöt er ekki brot á lögum Guðs, en það þýðir þó ekki þið eigið gera það. Það getur verið leyfilegt en kann þó vera óráðlegt. 24 Hugsið ekki aðeins um ykkur sjálf. Reynið líka hugsa um meðbróður ykkar og systur og hvað þeim fyrir bestu.

25 Farið þannig : Kaupið það kjöt sem selt er á torginu. Spyrjið ekki hvort það fórnarkjöt. 26 Jörðin og öll hennar gæði tilheyra Guði og eru ykkur til gagns og gleði.

27 Ef einhver, sem ekki er kristinn, býður þér í kvöldmat, þá skaltu hiklaust þiggja boðið ef þú vilt. Borðaðu allt sem fyrir þig er sett og spurðu einskis. Þá veistu ekki hvort maturinn hefur verið notaður til fórna eða ekki, og átt því ekki á hættu samviskubit. 28 En ef einhver aðvarar þig og segir þetta fórnarkjöt, skaltu ekki borða það, af tillitssemi við þann sem varaði þig við og samvisku hans. 29 Í þessu tilviki er það hans afstaða sem máli skiptir en ekki þín.

finnst þér ef til vill undarlegt hvers vegna þér ber láta skoðanir annarra hafa áhrif á og stjórna gerðum þínum. 30 Geti ég þakkað Guði fyrir matinn og notið hans, hvers vegna á ég þá láta einhvern annan eyðileggja allt, bara af því honum finnst ég hafa rangt fyrir mér? 31 , sjáið til. Það er vegna þess allt sem þið gerið á vera Drottni til dýrðar, jafnvel matur ykkar og drykkur. 32 Verið því ekki öðrum til hneykslunar, hvort sem það eru Gyðingar, heiðingjar eða trúbræður. 33 Þannig fer ég : Ég reyni þóknast öllum í öllu sem ég geri, og hugsa þá ekki aðeins um það sem mér fellur best eða gagnast mest, heldur um það sem getur orðið þeim fyrir bestu, svo þeim verði bjargað þeir frelsist.

Veja também