Um gjafir heilags anda
1 Vinir, nú langar mig að minnast á þá sérstöku hæfileika – náðargjafir – sem heilagur andi gefur hverju og einu ykkar, því að ég vil ekki að neinn misskilningur sé um þau efni. 2 Þið munið að áður en þið urðuð kristin, eltust þið við hvern hjáguðinn á fætur öðrum og enginn þeirra gat sagt eitt einasta orð. 3 Nú kynnist þið hins vegar fólki sem telur sig flytja boð frá anda Guðs. Hvernig getið þið þekkt hvort boðin eru frá heilögum anda eða fölsuð? Það getið þið á þessu: Enginn, sem bölvar Jesú eða lítilsvirðir hann, getur talað af innblæstri heilags anda og enginn getur sagt:
„Jesús er konungurinn, hann er Drottinn," og meint það, án hjálpar heilags anda.
4 Guð gefur okkur margvíslegar náðargjafir og þær eru allar komnar frá einum og sama andanum – heilögum anda. 5 Hægt er að þjóna Guði á marga vegu. 6 Guð starfar á ýmsan hátt í lífi okkar, en samt er það hinn eini sanni Guð, sem vinnur verkið. 7 Heilagur andi opinberar kraft Guðs í hverjum og einum, með þeim hætti sem helst verður kirkju hans til eflingar.