12 Margir líkamshlutar mynda saman einn líkama. Þannig er einnig með líkama Krists – kirkjuna. 13 Hvert og eitt okkar er hluti af líkama Krists. Sumir eru Gyðingar, aðrir Grikkir, sumir eru þrælar, aðrir frjálsir, en heilagur andi hefur í skírninni tengt okkur öll saman í líkama Krists og öll höfum við fengið hlutdeild í sama heilaga anda.
14 Líkaminn hefur marga líkamshluta, ekki aðeins einn. 15 Ef fóturinn segði: „Ég er ekki hönd, og mig varðar því ekkert um líkamann" þá yrði hann samt ekki líkamanum óviðkomandi. 16 Og hvað fyndist þér ef þú heyrðir eyrað segja: „Ég tilheyri ekki þessum líkama, því að ég er aðeins eyra en ekki auga!" Væri það þá laust við líkamann? 17 Ef líkaminn væri allur eitt auga, hvernig gæti hann þá heyrt? Eða væri hann aðeins eitt stórt eyra, gæti hann þá fundið lykt?
18 Nei, þannig skapaði Guð okkur ekki. Hann skapaði okkur með marga líkamshluta og hver hluti er á réttum stað. 19 Það væri furðulegur líkami, sem væri aðeins einn limur! 20 Guð gerði því marga líkamshluta – marga limi – sem saman mynda einn líkama. 21 Augað getur aldrei sagt við höndina: „Ég þarf ekkert á þér að halda!" Og höfuðið getur ekki sagt við fótinn: „Ég hef enga þörf fyrir þig!"
22 Sumir þeir líkamshlutar sem virðast veikbyggðastir, eru jafnvel nauðsynlegastir. 23 Já, við erum ánægð yfir að hafa vissa hluta sem skrýtnir eru. Og þá sem við viljum ekki að aðrir sjái og sem við blygðumst okkar fyrir, hyljum við vandlega, 24 meðan þeir líkamshlutar, sem allir mega sjá, krefjast ekki slíkrar umhyggju. Guð kom því þannig fyrir að meiri umhyggja og virðing er sýnd þeim sem gætu virst minni háttar. 25 Þetta hefur það í för með sér að allir líkamshlutarnir eru ánægðir og bera sömu umhyggju hver fyrir öðrum og þeir bera fyrir sjálfum sér. 26 Ef einn limur þjáist, finna allir til með honum og veitist einhverjum sæmd, samgleðjast allir hinir.
27 Jæja, ég er að reyna að segja þetta: Þið eruð öll sameiginlega líkami Krists og hver um sig sérstakur og nauðsynlegur hluti hans.