3 Nú kynnist þið hins vegar fólki sem telur sig flytja boð frá anda Guðs. Hvernig getið þið þekkt hvort boðin eru frá heilögum anda eða fölsuð? Það getið þið á þessu: Enginn, sem bölvar Jesú eða lítilsvirðir hann, getur talað af innblæstri heilags anda og enginn getur sagt:
„Jesús er konungurinn, hann er Drottinn," og meint það, án hjálpar heilags anda.