1 Þótt ég hefði hæfileika til að tala tungum og talaði öll tungumál, bæði jarðnesk og himnesk, en elskaði ekki aðra, þá væri það ómerkilegt glamur – tilgangslaus orðaflaumur. 2 Ef ég hefði spádómsgáfu og vissi allt um framtíðina, vissi bókstaflega allt um allt, en hefði ekki kærleika, hvaða gagn væri þá í því? Og jafnvel þó að ég hefði svo mikla trú að ég gæti skipað fjöllum að færast úr stað, þá væri ég einskis virði án kærleika. Ef ég elskaði ekki meðbræður mína, þá væri ég engu bættari. 3 Þótt ég gæfi fátækum aleiguna eða yrði brenndur á báli fyrir trúna á Jesú, en hefði ekki kærleika, væri ég ekkert betri.
4 Kærleikurinn er þolinmóður og góðviljaður. Hann er hvorki öfundsjúkur, montinn né hrokafullur. 5 Hann er aldrei yfirlætislegur, eigingjarn eða ókurteis. Hann krefst ekki réttar síns, reiðist ekki og er ekki langrækinn né smámunasamur. 6 Hann gleðst aldrei yfir ranglæti, heldur fagnar þegar sannleikurinn nær fram að ganga. 7 Sá sem hlýðir rödd kærleikans, breiðir yfir mistök annarra, treystir orðum þeirra, umber þá og væntir góðs frá þeim.