Publicidade

1 Coríntios 14

1 Keppið eftir kærleikanum og sækist eftir gjöfum og hæfileikum heilags anda, sér í lagi spádómsgjöfinni, en hún gerir okkur kleift flytja öðrum boðskap og skilaboð frá Guði.

Tungutal

2 Hafir þú hlotið þá náðargjöf tala tungum tala orð sem heilagur andi leggur þér í munn þá talar þú við Guð en ekki menn, því þeir munu ekkert skilja. Þú talar í krafti andans, en það er öðrum óskiljanlegt og leyndardómsfullt. 3 En sem spáir það er flytur boðskap frá Drottni hjálpar öðrum vaxa í trúnni á Guð, hann uppörvar þá og huggar. 4 sem talar tungum, hjálpar sjálfum sér til andlegs þroska, en sem flytur orð Guðs, spáir, hjálpar öllum söfnuðinum til vaxa helgun og gleði trúarinnar.

5 Ég vildi óska þið gætuð öll talað tungum, þó vildi ég enn frekar þið gætuð spáð, því það er meiri og gagnlegri hæfileiki en tala tungum nema ef þið getið túlkað það fyrir öðrum, til söfnuðurinn hafi gagn og fræðslu af.

6 Kæru vinir, ef ég kæmi til ykkar og talaði tungumál sem þið skilduð ekki hvaða gagn væri ykkur því? Það sem kemur ykkur raunverulegu gagni er ég greini ykkur skilmerkilega frá því sem Guð hefur opinberað mér. Segi ykkur frá því sem ég þekki og líka því sem á eftir gerast, hlutum sem verða ykkur til leiðbeiningar í trúnni. 7 Ég ætla taka dæmi: Ef dauðir hlutir eins og flauta eða harpa gefa frá sér óskýran eða falskan tón, hver þekkir þá lagið sem leikið er? 8 Sama er segja um herlúðurinn. blásið rangt í hann, þá vita hermennirnir ekki hvort verið kalla þá til orustu. 9 Eins er ef þú talar við mann á máli sem hann skilur ekki, hann veit ekki hvað þú ert segja. Þú gætir þá alveg eins talað út í bláinn!

10 Öll tungumál sem menn tala í heiminum eru gagnleg þeim sem þau skilja, 11 en þeim sem ekki skilur, eru þau algjörlega marklaus. sem talaði við mig á slíku máli, væri jafn ókunnugur eftir sem áður. 12 Fyrst þið sækist eftir gjöfum heilags anda, biðjið hann þá um þá mikilvægustu þá sem getur orðið kirkjunni í heild sem mestu gagni.

13 sem hefur hæfileika til tala tungum, ætti líka biðja um hæfileika til túlka það sem hann hefur sagt, til þess hann geti útskýrt það fyrir fólki, vel og greinilega. 14 Ef ég bið í tungum, þá biður andi minn, en sjálfur skil ég ekki hvað ég segi. 15 Hvað á ég þá gera? Hvort tveggja. Ég vil biðja í tungum og líka á venjulegu máli, sem allir skilja. Ég vil syngja í tungum, en líka á venjulegu máli, svo ég geti skilið lofgjörð þá sem ég flyt. 16 Því ef þú aðeins lofar og þakkar Guði í andanum og talar tungum, hvernig geta þá þeir, sem ekki skilja þig, tekið þátt í lofgjörðinni? Hvernig geta þeir tekið undir þakkargjörð þína ef þeir vita ekki hvað þú ert segja? 17 Þú myndir vissulega þakka afar fallega, en þeir sem heyra njóta þess ekki.

18 Ég er þakklátur Guði fyrir í einrúmi tala ég tungum meira en þið öll. 19 Í guðsþjónustu vil ég þó frekar segja fimm orð sem allir skilja og verða til gagns, en tíu þúsund á óskiljanlegu máli.

20 Kæru vinir, verið ekki barnaleg í skilningi ykkar á þessum hlutum. Verið sem saklaus börn þegar ráðið er illráðum, en fullþroska dómgreind í þessum málum. 21 Í Biblíunni er sagt Guð muni senda þjóð sinni útlenda menn, sem tala óskiljanleg mál, en samt muni þjóð hans ekki hlusta. 22 Af þessu sjáið þið tungutalið er tákn þeim sem ekki trúa þeir skilja ekki það sem Guðs er. Spádómsgáfan er hins vegar það sem kristnir menn þurfa sérstaklega á halda. Hún er þeirra tákn. Hún opinberar þeim vilja Guðs. 23 Segjum einhver, sem ekki trúir eða þekkir þessa hæfileika sem Guðs andi gefur, kæmi til guðsþjónustu og heyrði ykkur öll tala tungum, þá myndi hann líklega halda þið væruð gengin af vitinu! 24 En ef allir flyttu opinberun frá Guði spádómsorð og einhver sem ekki trúir eða fáfróður kæmi þangað inn, þá mundi boðskapurinn sannfæra hann um synd hans og vekja samvisku hans. 25 Hann mundi finna augu Guðs rannsaka hjarta sitt, falla á kné og vegsama Guð og segja, Guð væri sannarlega á meðal ykkar.

Reglur um guðsþjónustuhald

26 Jæja, vinir mínir, við skulum þá draga saman þetta sem ég hef verið segja. Þegar þið komið saman þá mun einhver syngja, annar kenna, einhver segja frá hlutum sem Guð hefur opinberað honum, annar mun tala tungum og einn annar túlka tungutalið. Munið allt sem þið gerið verður vera til uppbyggingar í trúnni. 27 Ekki ættu fleiri en tveir eða þrír tala tungum, og þá aðeins einn í einu, og einhver verður vera þar til túlka. 28 enginn viðstaddur sem getur túlkað tungutalið, mega þeir sem tala tungum ekki gera það upphátt, heldur skulu þeir þá aðeins tala lágt við sjálfa sig og Guð.

29,30 Tveir eða þrír mega spá á samkomunni, og þá einn í einu en allir aðrir hlusti. einn spá og einhver annar fær boðskap á meðan, eða sérstaka innsýn í eitthvað frá Guði, þá hann ekki grípa fram í, heldur skal hann leyfa þeim sem er tala ljúka máli sínu. 31 Þannig geta allir, sem hafa fengið spádóm, talað og þá hver á eftir öðrum og allir munu læra af og hljóta uppörvun og hjálp. 32 Munið sem fær boðskap frá Guði, hefur líka mátt til halda aftur af sér uns röðin er komin honum. 33 Guð vill ekki skipulagsleysi í söfnuði ykkar, heldur þar ríki friður og regla. Þannig er það líka í öllum kristnum söfnuðum.

34 Konur skulu ekki tala í guðsþjónustunum. Það er regla alls staðar. Þær skulu vera mönnum sínum undirgefnar eins og Biblían kennir. 35 En þurfi þær spyrja um eitthvað sem fram fer í guðsþjónustunni, þá spyrji þær eiginmenn sína heima, því það er ekki viðeigandi konur tali í guðsþjónustu.

36 Eruð þið ósammála? Haldið þið kannski orð Guðs komi frá ykkur, Korintumenn, eða ykkur einum ætlað? 37 Þið sem teljið ykkur geta spáð eða hafa aðra sérstaka hæfileika frá heilögum anda, ættuð manna fyrstir gera ykkur grein fyrir því það sem ég segi, eru fyrirmæli frá Drottni sjálfum. 38 Ef einhver er enn ósammála, þá hann um það.

39 Vinir mínir, sækist því eftir spádómsgáfunni til þess þið getið boðað orð Guðs hreint og ómengað, og ekkert fari milli mála. Komið ekki í veg fyrir talað í tungum og 40 gætið þess allt fari skipulega og sómasamlega fram.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-