Kjarni málsins
1 Kæru vinir, nú vil ég minna ykkur á kjarna fagnaðarerindisins. Hann hefur ekki breyst – það er sami góði boðskapurinn sem ég flutti ykkur forðum. Þið tókuð við honum með fögnuði og gerið enn, því að trú ykkar er grundvölluð á þessum dásamlega boðskap. 2 Hann mun verða ykkur til hjálpræðis ef þið haldið fast í trúna, annars ekki til neins.