Pular para o conteúdo
Publicidade

I. Korintubréf 15:20-22,42-44

20 Nei og aftur nei! Kristur er svo sannarlega upprisinn! Hann er hinn fyrsti allra þeirra sem eiga eftir að rísa upp frá dauðum.

21 Dauðinn kom inn í þennan heim vegna syndar eins manns Adams, en fyrir tilverknað Krists er nú til upprisa dauðra. 22 A sama hátt og allir deyja vegna þess að þeir eru afkomendur Adams, svo munu og allir þeir sem tilheyra Kristi, rísa upp frá dauðum.

42 Á sama hátt eru jarðneskir líkamar okkar, sem deyja og rotna, ólíkir þeim líkömum sem við fáum í upprisunni, því að þeir munu aldrei deyja. 43 Þeir líkamar sem við höfum nú, valda okkur oft erfiðleikum, því að þeir sýkjast, hrörna og deyja, en í upprisunni munu þeir breytast á dýrlegan hátt. Nú eru þeir veikbyggðir og dauðlegir, en þá verða þeir þrungnir lífskrafti. 44 Í dauðanum eru þeir mannlegir líkamar, en í upprisunni himneskir líkamar.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.