„Heimskuleg" fyrirætlun Guðs
1 Kæru bræður og systur, þegar ég kom til ykkar fyrst, þá notaði ég ekki háleit orð og snilldarlegar hugmyndir til að flytja ykkur boðskap Guðs. 2 Ég ákvað að tala eingöngu um Jesú Krist og dauða hans á krossinum. 3 Ég kom til ykkar í vanmætti, feiminn og hræddur. 4 Boðun mín var mjög fábrotin. Hún var ekki með mælskusnilld og mannlegri speki, heldur var kraftur heilags anda í orðum mínum og sannaði fyrir þeim, sem þau heyrðu, að boðskapurinn var frá Guði. 5 Þetta gerði ég af því að ég vildi að trú ykkar væri byggð á Guði einum, en ekki á háleitum hugsjónum einhvers manns.