14 Sá maður, sem ekki hefur anda Guðs, getur hvorki skilið né meðtekið þær hugsanir Guðs, sem heilagur andi kennir okkur. Þær eru fáránlegar í augum hans, því að þeir einir sem eiga heilagan anda geta skilið hvað heilagur andi á við. Aðrir botna hreint ekkert í því. 15 Sá maður sem hefur heilagan anda, hefur innsýn í allt. Það veldur undrun og heilabrotum þess sem ekki er kristinn, 16 og hvernig ætti hann líka að geta skilið það? Sá maður er alls ekki fær um að þekkja hugsanir Drottins eða ræða þær við hann. Það er undarlegt en satt, að við kristnir menn, skulum eiga hlutdeild í hugsun og huga Krists!
Publicidade