Publicidade

1 Coríntios 3

Afleiðing vanþroska

1 Kæru systkini, hef ég talað við ykkur eins og þið væruð enn ungbörn í trúnni eða eins og þeir sem ekki fylgja Drottni, heldur sínum eigin hvötum. Ég get ekki talað við ykkur eins og ég myndi tala við þroskaða menn, sem fylltir eru anda Guðs. 2 Ég hef orðið næra ykkur á mjólk en ekki á kjarngóðum mat, af því hann hafið þið ekki þolað og þið verðið jafnvel enn láta ykkur nægja mjólkina. 3 Þið eruð enn eins og smábörn og látið stjórnast af hvötum ykkar eingöngu, en ekki vilja Guðs. Þið eruð ennþá börn, sem fara sínu fram. Það sýnir afbrýðisemi ykkar hvers í annars garð og það þið skiptið ykkur í deiluhópa. Satt segja látið þið eins og fólk sem alls ekki tilheyrir Drottni. 4 Þarna eruð þið og rífist um hvort ég meiri en Apollós og kljúfið þar með söfnuðinn. Sýnir þetta ekki hve lítið þið hafið þroskast í Drottni?

5 Hver er ég, og hver er Apollós, við skulum vera deiluefni ykkar? Við erum aðeins þjónar Guðs, hvor um sig með sína sérstöku hæfileika, og með hjálp okkar komust þið til trúar. 6 Mitt verk var fræinu, orði Guðs, í hjörtu ykkar og verk Apollóss var vökva það en það var Guð, en ekki við, sem lét það vaxa. 7 Þeir sem og þeir sem vökva skipta ekki máli, en Guð skiptir öllu máli því hann gefur vöxtinn. 8 Við Apollós vinnum saman sama markmiði, þótt hvor okkar um sig muni hljóta laun í samræmi við erfiði sitt. 9 Við erum samverkamenn Guðs. Þið eruð akur Guðs en ekki okkar. Þið eruð hús Guðs en ekki okkar.

10 Guð hefur af gæsku sinni kennt mér hvernig á byggja. Ég lagði grunninn en Apollós byggði ofan á, og sem byggir ofan á verður gæta vel hvernig hann byggir. 11 Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem þegar er lagður og er Jesús Kristur. 12 En margs konar efni er hægt nota til byggja ofan á þennan grunn. Sumir nota gull, silfur og dýra steina en aðrir nota tré, hey eða strá. 13 Þegar Kristur kemur dæma heiminn, mun reyna á, hvers konar efni það er sem hver um sig hefur notað. Verk hvers og eins verður reynt í eldi, svo allir geti séð hvort það stenst og hvort eitthvert gagn var því. 14 Þá mun hver hljóta laun, sem stenst prófið, það er segja sem hefur byggt ofan á grunninn úr réttu efni. 15 Brenni hins vegar það sem einhver hefur reist, þá mun hann verða fyrir miklu tjóni. Sjálfur mun hann þó frelsast eins og sem bjargast úr eldi.

16 Skiljið þið ekki þið eruð öll hús Guðs og andi Guðs býr með ykkur í því húsi? 17 Ef einhver óhreinkar eða spillir húsi Guðs, þá mun Guð eyða honum, því hús Guðs er heilagt og hreint og slíkt hús eruð þið.

18 Hættið blekkja sjálf ykkur! Ef þið teljið ykkur vel greind, eftir mati þessa heims, leggið þá allt slíkt sjálfsmat á hilluna og teljið ykkur vankunnandi, annars missið þið af hinni sönnu visku frá Guði. 19 Viska þessa heims er heimska í augum Guðs. Eins og Jobsbók segir þá notar Guð snilli mannsins til veiða hann í gildru. Hann hrasar um sína eigin speki og dettur. 20 Og í Davíðssálmum er okkur sagt Drottinn viti fullvel hvernig mannleg speki bregst við og hversu heimskuleg og fánýt þau viðbrögð séu.

21 Stærið ykkur ekki af visku einhverra spekinga. Guð hefur þegar gefið ykkur allt sem þið þurfið. 22 Hann hefur gefið ykkur Pál og Apollós til hjálpar. Hann hefur gefið ykkur allan heiminn til afnota. Einnig lífið og dauðinn eru ykkur til þjónustu. Hann hefur gefið ykkur allt hið liðna og alla framtíð. Allt tilheyrir ykkur 23 og þið tilheyrið Kristi, og Kristur er Guðs.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-