Pular para o conteúdo
Publicidade

1 Coríntios 5

Páll krefst brottreksturs úr söfnuðinum

1 Það er á allra vörum viðbjóðslegir hlutir eigi sér stað á meðal ykkar, verri en meðal nokkurra heiðingja í söfnuði ykkar maður sem lifir í synd með konu föður síns. 2 Eruð þið enn jafn montin og andleg"? Hvers vegna fyllist þið ekki heldur hryggð og blygðun og gerið gangskör því víkja þessum manni úr söfnuði ykkar?

3,4 Þótt ég ekki hjá ykkur, þá hef ég hugsað mikið um þetta og í nafni Drottins Krists, hef ég þegar ákveðið hvað gera skal, rétt eins og ég væri þarna hjá ykkur. Kallið saman fund safnaðarins kraftur Drottins Jesú mun vera með ykkur er þið komið saman, og ég mun verða viðstaddur í andanum 5 og víkið þessum manni úr samfélagi kirkjunnar í hendur Satans, honum til refsingar, í þeirri von sál hans frelsist við endurkomu Jesú Krists.

6 Það er þokkalegt eða hitt þó heldur þið skulið vera hrósa ykkur af dyggðum ykkar og látið slíkt samt eiga sér stað! Vitið þið ekki einum manni leyft halda áfram syndga, munu brátt allir flekkast? 7 Fjarlægið þetta illkynjaða mein úr ykkar hópi svo þið getið verið hrein. Kristi, guðslambinu, hefur verið slátrað fyrir okkur. 8 Höldum því hátíð með honum og styrkjumst í kristilegu líferni. Snúum algjörlega baki við hinu sýkta, gamla líferni með öllu þess hatri og illsku. Höldum hátíð með hreinu, ósýrðu brauði hreinleikans og sannleikans.

9 Í bréfinu, sem ég skrifaði ykkur, sagði ég þið skylduð halda ykkur frá vondu fólki. 10 En þegar ég sagði það, átti ég ekki við trúleysingja, sem lifa í synd eða ágjarna svindlara og hjáguðadýrkendur, því það er útilokað lifa í þessum heimi án þess eiga einhver samskipti við slíkt fólk. 11 Ég átti við þið eigið ekki blanda geði við neinn sem telur sig vera bróður í trúnni, en er saurlífismaður eða svindlari, hjáguðadýrkari eða drykkjumaður eða ágjarn. Þið ættuð ekki einu sinni neyta matar með þess háttar manni.

Við eigum sjálf dæma í okkar málum

12 Það er ekki okkar dæma þá sem utan kirkjunnar eru. En vissulega er það okkar dæma þá sem eru í kirkjunni og sem syndga á þennan hátt. 13 Guð einn dæmir þá sem eru utan kirkjunnar en þið verðið sjálf dæma þennan mann og reka hann úr söfnuðinum.

Veja também