12 Ég get gert hvað sem ég vil, hafi Kristur ekki bannað það, en sumt er mér ekki til góðs. Þótt það sé leyfilegt, þá mun ég standa gegn því, ef ég held að það geti náð þeim tökum á mér að ég ætti erfitt með að hætta því.
13 Takið til dæmis matinn. Guð hefur gefið okkur matarlyst og maga til að melta. En það þýðir ekki að við eigum að borða meira en við þurfum. Fæðan er ekki mikilvæg, því að Guð mun á sínum tíma gera að engu bæði mat og maga. Saurlífi á aldrei rétt á sér. Líkamar okkar voru ekki skapaðir til þess, heldur handa Drottni, og Drottinn vill sjálfur helga líkama okkar. 15 Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir Krists – hlutar af honum? Ætti ég þá að taka hluta Krists og sameina hann skækju? Nei.
18 Haldið ykkur því frá öllu kynferðislegu lauslæti. Engin synd hefur jafnmikil áhrif á líkamann og sú. Ef þið syndgið á þennan hátt, þá er það gegn ykkar eigin líkama.