12 Ég get gert hvað sem ég vil, hafi Kristur ekki bannað það, en sumt er mér ekki til góðs. Þótt það sé leyfilegt, þá mun ég standa gegn því, ef ég held að það geti náð þeim tökum á mér að ég ætti erfitt með að hætta því.
13 Takið til dæmis matinn. Guð hefur gefið okkur matarlyst og maga til að melta. En það þýðir ekki að við eigum að borða meira en við þurfum. Fæðan er ekki mikilvæg, því að Guð mun á sínum tíma gera að engu bæði mat og maga. Saurlífi á aldrei rétt á sér. Líkamar okkar voru ekki skapaðir til þess, heldur handa Drottni, og Drottinn vill sjálfur helga líkama okkar. 14 Guð mun sjálfur reisa líkama okkar frá dauðum, með mætti sínum á sama hátt og hann reisti Drottin Jesú Krist. 15 Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir Krists – hlutar af honum? Ætti ég þá að taka hluta Krists og sameina hann skækju? Nei. 16 Vitið þið ekki að hafi maður mök við vændiskonu, verður hann hluti af henni og hún hluti af honum? Guð segir í orði sínu að í augum hans verði þau eitt hold. 17 En ef þú gefst Drottni, þá ert þú og Kristur samtengdir sem einn maður.
18 Haldið ykkur því frá öllu kynferðislegu lauslæti. Engin synd hefur jafnmikil áhrif á líkamann og sú. Ef þið syndgið á þennan hátt, þá er það gegn ykkar eigin líkama. 19 Hafið þið ekki skilið að líkami ykkar er híbýli heilags anda, sem Guð gaf ykkur og lifir í ykkur? Þið eigið ekki líkama ykkar! 20 Guð hefur keypt ykkur dýru verði. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.