Ekki er guðsríki allra
9,10 Vitið þið ekki, að þeir sem svona hegða sér eiga engan hlut í guðsríki? Látið ekki blekkjast! Þeir sem lifa siðlausu lífi – hjáguðadýrkendur, hórkarlar, kynvillingar – munu engan hlut eiga í ríki Guðs, ekki heldur þjófar eða ágjarnir, drykkjumenn, rógberar eða ræningjar. 11 Þetta voruð þið sumir hverjir eitt sinn, en nú eru syndir ykkar burt þvegnar og þið eruð helgaðir og teknir frá handa Guði. Hann hefur sýknað og viðurkennt ykkur sem sín börn, vegna þess sem Drottinn Jesús Kristur og andi Guðs hafa gert fyrir ykkur.