10 En ég hef ekki aðeins ábendingar til þeirra sem giftir eru, heldur einnig fyrirmæli. Og það eru ekki bara fyrirmæli frá mér, heldur sjálfum Drottni: Eiginkona má ekki skilja við mann sinn. 11 En hafi hún skilið við hann, þá á hún að vera áfram ógift eða fara til hans aftur. Eiginmaður má ekki heldur skilja við konu sína.
12 Við þetta hef ég nokkrum atriðum að bæta; það eru að vísu ekki bein fyrirmæli Drottins, en mér virðist þau samt eiga rétt á sér. Ef kristinn maður á konu, sem ekki er kristin, en vill þó búa með honum, þá má hann ekki skilja við hana eða fara frá henni.