12 Við þetta hef ég nokkrum atriðum að bæta; það eru að vísu ekki bein fyrirmæli Drottins, en mér virðist þau samt eiga rétt á sér. Ef kristinn maður á konu, sem ekki er kristin, en vill þó búa með honum, þá má hann ekki skilja við hana eða fara frá henni. 13 Og ef kristin kona er gift manni, sem ekki er kristinn og hann vill að hún búi með honum, þá má hún ekki skilja við hann. 14 Hinn trúlausi maður færist nær Guði vegna kristinnar konu sinnar og trúlaus kona færist nær Guði vegna kristins eiginmanns. Ef svo væri ekki, teldust börn ykkar yfirleitt trúlaus, en nú eru þau álitin heilög – frátekin Guði til handa.
Publicidade