3 Karlmaðurinn á að veita konu sinni það sem henni ber og konan manninum. 4 Stúlka sem giftist hefur ekki lengur fullan rétt yfir eigin líkama, því eiginmaður hennar hefur einnig sinn rétt til hans. Á sama hátt hefur eiginmaðurinn ekki lengur fullt vald yfir sínum líkama, því að hann tilheyrir konu hans. 5 Samkvæmt þessu skulu hjón ekki neita hvort öðru um rétt hins, nema þau séu sammála um það stuttan tíma, til að geta helgað sig bæninni. Síðan ættu þau að koma saman á ný, svo að Satan freisti þeirra ekki vegna veikleika þeirra.
Publicidade