8 Því segi ég við þá sem ógiftir eru og ekkjumenn, betra væri að vera ógiftur eins og ég er. 9 En ef þið getið ekki haft fullt vald á sjálfum ykkur, þá skuluð þið giftast, því að betra er að giftast en brenna af girnd.
10 En ég hef ekki aðeins ábendingar til þeirra sem giftir eru, heldur einnig fyrirmæli. Og það eru ekki bara fyrirmæli frá mér, heldur sjálfum Drottni: Eiginkona má ekki skilja við mann sinn. 11 En hafi hún skilið við hann, þá á hún að vera áfram ógift eða fara til hans aftur. Eiginmaður má ekki heldur skilja við konu sína.