10 Sjáið nú til, þetta getur gerst: Einhver sem telur rangt að neyta fórnarkjöts, sér þig – sem veist að það er skaðlaust borða það, þá mun hann líkja eftir þér, þótt honum finnist það vera rangt. 11 Með þekkingu þinni (um að neysla þess sé skaðlaus) veldur þú viðkvæmum trúbróður miklum andlegum skaða, manni sem Kristur dó fyrir. 12 Það er synd gegn Kristi, að syndga gegn trúbróður með því að hvetja hann til einhvers sem honum finnst rangt. 13 Ef neysla kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, leiðir trúbróður afvega, mun ég ekki neyta þess svo lengi sem ég lifi, til þess að ég valdi honum ekki slíku tjóni.
Publicidade