Publicidade

1 Coríntios 9

Páll útskýrir postulahlutverk sitt

1 Ég er postuli, sendiboði Guðs, og ábyrgur gagnvart honum einum. Ég hef séð Drottin Jesú, konung okkar, með eigin augum og trú ykkar á hann er árangur erfiðis míns fyrir hann. 2 Finnist öðrum ég ekki vera postuli, þá er ég það samt í ykkar augum, því þið hafið gefist Kristi vegna starfs míns. 3 Þetta er svar mitt til þeirra sem efast um rétt minn.

4 Hef ég kannski engan rétt? Get ég ekki krafist sömu réttinda og hinir postularnir til njóta gestrisni ykkar? 5 Ef ég ætti kristna eiginkonu, gæti ég þá ekki tekið hana með mér í ferðir mínar alveg eins og postularnir, bræður Drottins, og Pétur? 6 Verðum við Barnabas einir vinna fyrir okkur, á meðan þið haldið hinum uppi? 7 Hvaða hermaður verður greiða kostnaðinn við herþjónustuna úr eigin vasa? Hafið þið nokkru sinni heyrt um bónda sem hirðir tún sín en er síðan meinað nýta heyið til eigin þarfa? Og hvaða sjómaður er ráðinn á bát án þess hlut? 8 Hér er ég ekki aðeins vitna í skoðanir manna um hvað rétt, heldur í lög Guðs, því þau segja þetta sama. 9 Í lögunum, sem Guð birti Móse, segir hann ekki megi múlbinda uxa sem þreskir korn og meina honum þannig eta af korninu. Haldið þið Guð hafi eingöngu verið hugsa um uxana er hann sagði þetta? 10 Var hann ekki líka með okkur í huga er hann gaf þessi fyrirmæli? Vitaskuld! Hann sagði þetta til þess sýna þeir sem vinna, skuli borgað fyrir störf sín. Þeir sem plægja og þreskja, ættu hluta uppskerunnar.

11 Við höfum sáð andlegu sæði í sálir ykkar. Er þá of mikið fara fram á fæði og klæði launum? 12 Þetta veitið þið öðrum sem predika yfir ykkur, enda ber ykkur gera slíkt, en ættum við ekki hafa jafnvel meiri rétt en þeir? Samt höfum við aldrei krafist þess, heldur sjáum við fyrir þörfum okkar án hjálpar ykkar. Við höfum aldrei krafist launa, af ótta við ef við gerðum það þá hefðuð þið minni áhuga á boðskap okkar um Krist.

13 Vitið þið ekki Guð lagði svo fyrir þeir sem vinna við musterið, skuli njóta hluta þeirra gjafa sem berast til musterisins? Og þeir sem starfa við fórnaraltarið hluta þess matar sem fórnað er Guði? 14 Á sama hátt hefur Drottinn gefið fyrirmæli um þeir sem flytja gleðiboðskapinn, skuli hljóta lífsviðurværi sitt frá þeim sem við honum taka. 15 Samt hef ég aldrei beðið ykkur um eina einustu krónu, hvað þá meira. Þetta skrifa ég ekki til gefa í skyn ég hafi slíkt í hyggju. Satt segja vildi ég frekar deyja úr hungri en verða af þeirri ánægju, sem ég við flytja ykkur gleðiboðskapinn án endurgjalds. 16 Það eitt flytja gleðiboðskapinn er mér ekkert hrósunarefni. Ég gæti ekki hætt þótt ég vildi. Þá yrði ég ófær til alls. Ég væri búinn vera ef ég hætti boða Guðs orð.

17 Ef ég væri í sjálfboðavinnu af eigin frumkvæði og vilja þá mundi Guð launa mér ríkulega, en þannig er því ekki farið. Því Guð hefur kallað mig til þessa verks, falið mér þetta trúnaðarstarf, og ég á hreint ekkert val. 18 Fyrst svo er, hvað hlýt ég þá launum? , þá gleði og fögnuð sem fylgir því flytja boðskapinn öðrum kostnaðarlausu og án þess krefjast þess sem mér ber.

19 Það hefur einnig þann mikla kost ég er engum háður vegna launanna, þó hef ég af fúsum og frjálsum vilja gerst allra þjónn, svo ég geti unnið þá fyrir Krist. 20 Þegar ég er með Gyðingum er ég sem einn þeirra, svo þeir vilji hlusta á boðskapinn og ég geti leitt þá til Krists. Þegar ég er meðal þeirra sem ekki eru Gyðingar, en fylgja þó siðum þeirra og venju, þá deili ég ekki við þá, jafnvel þótt ég þeim ekki sammála, því ég vil geta hjálpað þeim. 21 Þegar ég er meðal heiðingja er ég þeim sammála svo miklu leyti sem ég get, þó auðvitað verð ég sem kristinn maður gera alltaf það sem rétt er. Þannig vinn ég traust þeirra og þá get ég líka hjálpað þeim.

22 Þegar ég er með þeim sem viðkvæmir eru og óstyrkir, þá læt ég ógert finna við þá, til þess ég geti orðið þeim til góðs. Hvernig sem maðurinn er þá reyni ég alltaf vera honum sammála einhverju leyti, til ég geti nálgast hann, sagt honum frá Kristi og Kristur frelsi hann. 23 Þetta geri ég til þess ég geti komið gleðiboðskapnum og einnig vegna þeirra blessunar er ég sjálfur hlýt við sjá fólk koma til Krists.

Leggið hart ykkur og vinnið sigur!

24 Í kapphlaupi hlaupa allir en aðeins einn fær gullið. Hlaupið þannig þið getið sigrað! 25 Til vinna keppni verður þú neita þér um ýmislegt, sem hindrað gæti árangur þinn. Íþróttamaður leggur hart sér, til þess eins vinna fánýtan verðlaunagrip, en við til vinna himnesk laun, sem vara eilífu. 26 Ég stefni því beint á markið og hvert skref færir mig nær sigrinum ég keppi til sigurs! Ég er ekki þessu til leika mér eða eyða tímanum. 27 Ég leik sjálfan mig hart eins og íþróttamaður. Ég aga mig og þjálfa til þess ég, sem hef lagt öðrum lífsreglurnar, verði ekki sjálfur dæmdur úr leik!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-