7 Kæru vinir, það er ekki nýtt boðorð sem ég ætla að gefa ykkur. Þið kunnið það. Það er gamalt boðorð og þið hafið þekkt það frá öndverðu. 8 Samt er það alltaf nýtt og gildir eins fyrir ykkur og Krist, en það er svona: Elskið hvert annað. Þegar við hlýðum þessu boðorði hverfur myrkrið úr lífi okkar og hið nýja ljós – ljós Krists – skín inn í sál okkar.